Sport

Dag­skráin í dag: Toppslagur í Bestu deildinni

Andri Broddason skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Sigurðarson hafa verið tveir bestu leikmenn deildarinnar í ár.
Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Sigurðarson hafa verið tveir bestu leikmenn deildarinnar í ár. Anton/Vísir

Efstu tvö lið Bestu deildar karla mætast í kvöld í lokaleik næstsíðustu umferðar áður en deildinni verður skipt. Víkingur getur farið langleiðina með að tryggja sér sigur í deildinni með sigri en KR getur með sigri haldið voninni um Íslandsmeistaratitilinn á lífi.

Þegar leiknum er lokið ætlar Stúkan að gera upp umferðina og sjá hvernig næstu umferðir deildarinnar verða. 

Andri Lucas Guðjohnsen verður einnig í eldlínunni þegar Lincoln tekur á móti Blackburn í ensku B-deildinni. Blackburn byrjar ágætlega í deildinni en getur bætt stöðu sína enn frekar með sigri í kvöld.

Sýn Sport Ísland

17:10 - KR tekur á móti Víkingi í Bestu deild Karla.

19:35 - Stúkan ætlar að gera upp nýliðna umferð í Bestu deild karla.

Sýn Sport Viaplay

18:40 - Lincoln tekur á móti Blackburn í ensku B-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×