Innlent

Inga segir já

Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Inga Sæland hefur þegar greitt atkvæði. 
Inga Sæland hefur þegar greitt atkvæði.  Vísir/Lýður

Inga Sæland formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra hefur þegar greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun, og sagði já. Inga greindi frá þessu í viðtali við Berghildi Erlu Bernharðsdóttur fréttamann að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.

Inga segir ýmislegt hafa haft áhrif á það að hún hafi skipt um skoðun í málinu og nefndi í því samhengi upplýsingaóreiðu og falsfréttir sem henni hafa þótt yfirgengilegar í aðdraganda kosninganna.

„Mig langar að sjá samninginn, og svo getum við sagt nei,“ sagði Inga að loknum fundi.

Stefna Flokks fólksins hefur alltaf verið á móti Evrópusambandinu en Inga segir að þó svo að það sé stefna finnist henni í lagi að skoða hvað þau myndu fá og þau geti þá skipt um skoðun síðar.

Skiptar skoðanir virðast vera innan flokksins en í það minnsta þrír þingmenn flokksins ætla að segja nei. Þau Jónína Björk Óskarsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Sigurjón Þórðarson.

Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð. 


Tengdar fréttir

Þorgerður beygði af í Bítinu

Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa borist alvarlegar hótanir síðustu vikur og átti erfitt með að ræða þær í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir þær til skoðunar hjá lögreglu. Hún segist þó telja sig örugga. Hún sagðist berjast fyrir bættum lífskjörum Íslendinga og að atkvæðagreiðslan á morgun snúist um það, og breytta stöðu alþjóðlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×