Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Samúel Karl Ólason skrifar 27. ágúst 2026 07:59 John Ratcliffe, yfirmaður CIA, og Donald Trump, forseti. Bandaríkjamenn eru sagðir hafa áhyggjur af mögulegri árás Rússa á ríki í Atlantshafsbandalaginu. EPA/YURI GRIPAS Óvænt heimsókn yfirmanns Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) til Moskvu vakti nokkra athygli í vikunni. Þangað fór hann til að vara ráðamenn í Rússlandi við því að gera árás á ríki Atlantshafsbandalagsins eða jafnvel innrás í Eystrasaltsríki.
Ráðamenn beggja vegna Atlantshafsins hafa lítið viljað segja um tilefni ferðar Johns Ratcliffe til Moskvu á þriðjudaginn, þar sem Donald Trump lýsti henni sem „hálf-hefðbundinni“ og talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, vildi sem minnst segja um hana, annað en að Ratcliffe hefði rætt við kollega sína í Rússlandi og ekki forsetann. Það sagði Peskóv degi eftir að Ratcliffe fór til Moskvu. Fyrst sagðist hann engar upplýsingar hafa um ferðina. Trump var í viðtali í gær þar sem hann sagði eingöngu að ferðin væri „hálf-hefðbundin“ og fór síðan að tala um að hann vildi binda enda á stríðið í Úkraínu. Sjá einnig: Yfirmaður CIA í Moskvu Fjölmiðlar vestanhafs og í Evrópu hafa þó flutt fréttir af því hvert tilefnið var. Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af því að Pútín, sem gengur tiltölulega illa í Úkraínu og er undir nokkrum þrýstingi heima fyrir, gæti skipað herafla sínum að gera einhvers konar árás á ríki í NATO og þá líklegast eitt af Eystrasaltsríkjunum, Eistland, Lettland eða Litáen. Samkvæmt heimildum Wall Street Journal sneri óttinn að umfangsmiklum tölvuárásum eða jafnvel innrás á tiltölulega smáum skala. Heimildarmenn miðilsins segja að spilað gæti inn í þankagang Pútíns að Bandaríkjamenn, sem mynda burðarstólpann í NATO, og önnur ríki bandalagsins eiga ekki mikið af hergögnum um þessar mundir og framleiðsla þeirra annar ekki eftirspurn. Sjá einnig: Yfirheyra bandamenn sína í NATO Bæði Bandaríkin og önnur ríki NATO hafa sent mikið af hergögnum til Úkraínu og þá hafa Bandaríkjamenn notað mikið magn hergagna, þar á meðal mikilvæg langdræg vopn og flugskeyti í loftvarnarkerfi, í stríðinu gegn Íran. Heimildarmenn Politico segja að Ratcliffe hafi einnig farið til Moskvu til að koma því á framfæri við ráðamenn í Rússlandi að Bandaríkjamenn vildu að þeir hættu stuðningi við Írani. Að Rússar hættu að senda Írönum hergögn og vopnatækni. Ratcliffe mun einnig hafa sagt Rússum að bregðast ekki of harkalega við ef Bandaríkin beittu þá frekari refsiaðgerðum vegna samskiptanna og aðstoðarinnar við Írani, eins og Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði nýlega að gert yrði. Sjá einnig: Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Rússar eru sagðir hafa sent Írönum innviði og íhluti fyrir drónaframleiðslu og eru þar að auki sagðir hafa veitt Írönum upplýsingar um möguleg skotmörk í Mið-Austurlöndum og víðar. Fyrsta ferðin til Moskvu Frá því hann tók fyrst við embætti forseta hefur Trump ítrekað deilt við leyniþjónustusamfélag Bandaríkjanna og þá sérstaklega varðandi málefni Rússlands. Forsetinn hefur jafnvel talað máli Pútíns gegn eigin leyniþjónustum. Eins og fram kemur í grein Politico er talið að viðhorf Trumps gagnvart Pútín hafi versnað nokkuð og þá að stórum hluta vegna þess að Trump hefur lítið sem ekkert gengið að binda enda á stríðið í Úkraínu. Áður en hann varð aftur forseti sagðist Trump ætla að gera það á fyrsta degi sínum í Hvíta húsinu. Ætlaði hann þá að nota meint frábært samband sitt og Pútíns til þess. Ratcliffe þykir hafa tiltölulega harða afstöðu gagnvart Rússlandi en Trump hefur áður notað hann til að flytja sambærileg skilaboð. Fyrr á þessu fór hann til að mynda í leynilega ferð til Havana á Kúbu og sagði ráðamönnum þar að ef þeir færu ekki í umfangsmiklar umbætur yrðu þeir beittir miklum þrýstingi. Þetta var fyrsta ferð Ratcliffe til Moskvu, svo vitað sé. Síðasti yfirmaður CIA sem fór þangað var William Burns en hann fór þangað í nóvember 2021, til að vara Rússa við því að gera innrás í Úkraínu.
Rússland Bandaríkin Donald Trump NATO Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira