Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar 25. ágúst 2026 08:32 Eru íslendingar ekki með öllum mjalla? Kannski bara hálfum? Kannski ekki einu sinni það? Nú efna menn til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við útlendinga. Sem menn höfðu hafið fyrir rúmum áratug en verið hætt samkvæmt ákvörðun nýrrar ríkisstjórnar. Forsætisráðherrann nýi lofaði þá þjóðaratkvæðagreiðslu um framhaldið, en sveik það loforð. Og nú er hann á móti þjóðaratkvæðagreiðslu; þjóðaratkvæðagreiðslunni sem hann lofaði fyrir rúmum áratug. Sannast þar með hið fornkveðna að þar er aldrei of seint að svíkja gefin loforð. Í landinu situr ríkisstjórn sem styðst við meirihluta alþingis. Eins og vera ber í lýðræðislöndum. En ríkisstjórnin má ekki ræða framtíð landsins við útlendinga. Nema þjóðin samþykki það fyrst í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sem fróðir menn hafa sagt að muni kosta um tvo milljarða – 2 000 000 milljónir. Og til hvers? Reynsla íslendinga af þjóðaratkvæðagreiðslum er ekki góð. Síðast þegar boðið var upp á þjóðaratkvæðagreiðslu – um nýja stjórnarskrá – greiddu tveir þriðjuhlutar atkvæði með nýrri stjórnarskrá. En ríkisstjórnin gerði ekkert. Benti á að atkvæðagreiðslan væri aðeins ráðgefandi, ekki bindandi. Og enn er í gildi gamla stjórnarskráin, að stofni til frá 1874 – meira en 150 ára gömul. Sem Jón Sigurðsson var á móti; hann sem aldrei barðist fyrir sjálfstæði Íslands heldur einungis fyrir verslunarfrelsi. Húrra fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum! Um helmingur þjóðarinnar vill ekki halda áfram viðræðum við útlendinga. Íslandi allt! Við tölum ekki við útlendinga um eitt eða neitt. Við viljum ráða okkur sjálfir. Reyndar er það svo að gegnum EES-samninginn stýra útlendingar í Bryssel ótrúlega mörgu á Íslandi. Gegnum samning sem aldrei var borinn undir þjóðina. Heldur þröngvað yfir þjóðina með svikum þegar Jón Baldvin bauð hégómafullum Davíð Oddssyni að verða forsætisráðherra í ríkisstjórn sem myndi innleiða EES-samninginn. Davíð – og gjörvallur Sjálfstæðisflokkurinn – var á móti EES. En hvað gera menn ekki fyrir stól forsætisráðherra? Sem hann sat svo í næstu 13 árin. Og gjörvallur Sjálfstæðisflokkurinn lét sér þetta að góðu líka. Já, landráðin láta ekki að sér hæða. En nú er öldin önnur. Nú tölum við ekki við útlendinga. Sama þótt á lofti séu einhver gylliboð. Hver man ekki viðvaranirnar sem við fengum um að fara aldrei upp í bíl með ókunnugum? Einhverjum kverúlöntum sem buðu okkur sælgæti ef við myndum koma með þeim í bíltúr. Kannski upp í Heiðmörk? Eða til Þingvalla? Nei, við létum ekki plata okkur. Og látum ekki plata okkur. Aldrei! Þess vegna fáum við aldrei að vita hvað er í boði. Og hverjar fórnirnar yrðu. Hvort íslendingar halda fullum yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni. Eða landbúnaðinum. – Reyndar eru stórir hlutar landsins nú þegar í eigu útlendinga. En um það skulum við ekki tala. Spyrjum frekar hvort íslendingum myndi bjóðast að verða viðskiptavinir í evrópskum bönkum? Og kannski fá hagstæð lán til húsnæðiskaupa með viðráðanlegum vöxtum? Ef til vill eru það gagnleg sannindi sem Þorsteinn Erlingsson benti okkur á og fólust í ljóði hans: Sá sem, hræðist fjallið og einlægt aftur snýr, fær aldrei leyst þá gátu: hvað hinumegin býr. Höfundurinn er ellilífeyrisþegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar