Fótbolti

Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina

Andri Broddason skrifar
Ísak Andri Sigurgeirsson og félagar í Norrköpping eru á toppi sænsku B-deildarinnar.
Ísak Andri Sigurgeirsson og félagar í Norrköpping eru á toppi sænsku B-deildarinnar. ifknorrkoping.se

Norrköping náði að auka forskot sitt á toppi sænsku B-deildarinnar þegar liðið vann Falkenberg sem er í öðru sæti deildarinnar. Ísak Andri Sigurgeirsson kom ekki inn á fyrir Norrköping í leiknum.

Toppslagur var í sænsku B-deildinni í fótbolta í kvöld þegar Norrköping tók á móti Falkenberg. Norrköping var betri aðilinn í leiknum og náði að sýna það í leiknum.

Christoffer Nyman, fyrirliði Norrköping, skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og virtist leikurinn verða þægilegur fyrir toppliðið. Falkenberg náði þó að minnka muninn á 66. mínútu með marki frá Godwin Aguda en fleiri urðu mörkin ekki í leiknum. Ísak Andri Sigurgeirsson var á bekknum allan leikinn og fékk ekki að koma inn á fyrir Norrköping.

Eftir leikinn er Norrköpping með meira forskot á toppi sænsku B-deildarinnar með 44 stig. Falkenberg heldur öðru sætinu þrátt fyrir tap með 35 stig. Norrköpping er búið að vinna síðustu sex leiki félagsins í bæði deild og bikar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×