Innlent

Eldur í bíl í Vestur­bænum

Atli Ísleifsson og Áróra L Davíðsdóttir skrifa
Enginn var í bílnum þegar kviknaði í honum. 
Enginn var í bílnum þegar kviknaði í honum.  Aðsend/Jóhann

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í morgun eftir að tilkynnt var um eld í bíl á Víðimel í vesturbæ Reykjavíkur.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var dælubíll sendur á staðinn, sem og sjúkrabíll. Enginn var þó í bílnum og enginn slasaður.

Víða úr Vesturbænum sést reykstrókur frá bílnum.Aðsend

Útkallið kom klukkan 8:15.

Búið er að slökkva eldinn. Aðsend
Bíllinn varð alelda. Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×