Fótbolti

Hin­rik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrk­landi fögnuðu sigrum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hinrik Harðarson skoraði í bikarsigri Egersund í dag.
Hinrik Harðarson skoraði í bikarsigri Egersund í dag. egersund

Rosenborg, sem Freyr Alexandersson stýrir, rúllaði yfir Nationalkameratene, 0-9, í 1. umferð norsku bikarkeppninnar í fótbolta í dag.

Hinrik Harðarson opnaði markareikninginn fyrir Egersund sem sigraði Våg, 2-5, í bikarkeppninni. Hinrik kom til Egersund frá Odd á dögunum.

Íslendingarnir í tyrknesku úrvalsdeildinni fögnuðu báðir sigri í dag.

Logi Tómasson var á sínum stað í vinstri bakverðinum hjá Samsunspor sem sigraði Rizespor, 0-2, á útivelli. Samsunspor er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki sína.

Andri Fannar Baldursson var í byrjunarliði Kasimpasa sem sigraði Corum, 0-1. Andri spilaði fyrstu 67 mínútur leiksins. Kasimpasa er með fjögur stig í deildinni.

Nökkvi Þeyr Þórisson var í fremstu víglínu hjá Spörtu Rotterdam sem gerði 3-3 jafntefli við Utrecht í 3. umferð hollensku úrvalsdeildarinnar.

Sparta er með fjögur stig í 8. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×