Íslenski boltinn

Ís­firðingar geta andað léttar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vestri fékk draumabyrjun gegn Leikni og vann mikilvægan sigur á Breiðhyltingum á Ísafirði í dag.
Vestri fékk draumabyrjun gegn Leikni og vann mikilvægan sigur á Breiðhyltingum á Ísafirði í dag. vísir/diego

Vestri kvaddi líklega fallbaráttuna í Lengjudeild karla fyrir fullt og allt með 2-0 sigri á Leikni á Ísafirði í dag.

Áður en að viðureign dagsins kom hafði Vestri aðeins unnið einn af síðustu átta deildarleikjum sínum.

Vestramenn fengu draumabyrjun á leiknum í dag en eftir aðeins 39 sekúndur kom Johannes Selvén þeim yfir eftir sendingu frá Ibrahima Balde.

Á 38. mínútu átti Balde skot í stöngina á marki Leiknismanna, boltinn fór í Guðjón Pétur Stefánsson og inn.

Eftir þetta sjálfsmark var staða Vestra orðin góð og svo fór að heimamenn unnu 2-0 sigur.

Vestri er núna í 7. sæti deildarinnar með 27 stig, sjö stigum frá fallsæti þegar liðið á tvo leiki eftir á tímabilinu. Leiknir er í 8. sætinu með 25 stig.

Upplýsingar um markaskorara og gang mála eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×