Erlent

Tveir hinna látnu lög­reglu­menn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Frá vettvangi í morgun.
Frá vettvangi í morgun. APOwen Humphreys

Sjö létust í bílslysi nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt þegar lögreglubíll og Volkswagen Passat-bifreið skullu saman. Tveir hinna látnu voru lögreglumenn.

Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglunnar í Cleveland í Jórvíkurskíri í dag. Talið er að Passat-bifreiðinni hafi verið ekið á röngum vegarhelmingi og lent framan á lögreglubílnum. Lögreglumennirnir hétu Matthew Blades og Tom Clogh. 

Victoria Fuller, lögreglustjóri í Cleveland, segir að búið sé að bera kennsl á hina fimm sem létust. Unnið er að því að tilkynna fjölskyldum þeirra hvað hafi gerst. Á fundinum bað hún fólk um að vera ekki með getgátur um hvað hefði gerst, lögreglan rannsaki nú málið og fjölskyldur hinna látnu eigi skilið frið.

Í fyrstu fréttum af slysinu var talað um að lögreglubíllinn hefði veitt Passat-bílnum eftirför. Breska ríkisútvarpið segir nú að það sé ekki alveg rétt. Aðrir lögreglumenn hafi verið að elta ökumann Passat-bílsins uppi, en lögreglumennirnir sem lentu í árekstrinum hafi verið að sinna öðrum verkefnum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×