Veður

Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðar­línuna

Agnar Már Másson skrifar
Björgunarsveitir í Hveragerði, Stokkseyri og Eyrarbakka hafa haft í nógu að snúast síðdegis í dag.
Björgunarsveitir í Hveragerði, Stokkseyri og Eyrarbakka hafa haft í nógu að snúast síðdegis í dag. Samsett Mynd

Gul viðvörun er í gildi á öllu landinu. Slysavarnafélagið Landsbjörg greinir frá því að nú í eftirmiðdaginn hafi þó nokkrar björgunarsveitir á Ölfussvæðinu verið kallaðar út vegna yfirvofandi foktjóns.

Einn innhringjanda til Neyðarlínu lá sjálfur á þakplötu sem hafði losnað til að forða því að hún ylli tjóni, að því er fram kemur í tilkynningu slysavarnarfélagsins.

Þakplötur hafi losnað á hesthúsi á Eyrarbakka og á nýlegu íbúðarhúsi hafi þakplötur verið teknar að losna en voru festar niður á ný.

Á Litla-Saurbæ hafi þak á gamalli hlöðu verið við það að fjúka en björgunarsveit hafi byrjað á því að koma vörubíl með krabba í krana til að styðja við þakið og ferja það niður.

Til hafi staðið að rífa húsið og verktaki mættur á svæðið með tæki til þess en vinna var ekki hafin. Þar sem ljóst var að byggingin myndi ekki standa mikið lengur þótti skynsamlegt að ljúka niðurrifi hið snarasta. Sú ákvörðun var tekin með ábúanda og gengið í það að fella hlöðuna. Þar var til aðstoðar verktakinn og þau tæki sem hann hafði þegar komið með á svæðið.

Björgunarsveitir óku að þessu loknu um byggðarlögin til eftirlits, áður en haldið var aftur í bækistöðvar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×