Íslenski boltinn

„Kær­komið að fá eitt svona mark“

Árni Gísli Magnússon skrifar
Matthías Guðmundsson er þjálfari Vals. 
Matthías Guðmundsson er þjálfari Vals.  VÍSIR/VILHELM

Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, segir tilfinningarnar frábærar eftir að hafa sótt 1-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan en eina mark leiksins kom á lokamínútu venjulegs leiktíma.

„Frábærar. Frábært að fá sigur hér á erfiðum útivelli sem lið hérna núna seinustu vikur eða seinustu fjóra leiki allavega hafa verið að tapa“.

Blaðamanni fannst Þór/KA hafa verið mikið betri aðilinn og var því næsta spurning hvort Matthías hafi ekki verið sáttur að fara með jafnan leik inn í hálfleikinn þar sem Valsliðið hafi verið betra svo í síðari hálfleik en Matthías var ekki sammála um fyrri hálfleikinn.

„Ég las leikinn ekki þannig. Mér fannst hann kaflaskiptur í fyrri hálfleik. Mér fannst þær skapa færi á einstaklingsgæðum þar sem þær skjóta í stöngina eitthvað. Mér fannst við alveg vera með stjórn. Það sem mér fannst vanta er að við höfðum meiri tíma á boltann en við gerðum okkur grein fyrir, hefðum getað svona þrætt hann ofar á völlinn og fært þær neðar oftar heldur en við gerðum í fyrri hálfleik. Fór ekkert um mig í fyrri hálfleik þannig séð en seinni hálfleikur fannst mér bara hörku seinni hálfleikur þar sem bæði lið héldu áfram að skiptast á góðum köflum.“

Það hlýtur að hafa verið ljúft að sjá boltann inni undir lokin hjá Lillý?

„Já ekki spurning. Það var frábært og kærkomið að fá eitt svona mark.“

Valur hélt hreinu í dag sem Matthías er einkar ánægður með.

„Já ekki spurning, ég er mjög ánægður með það. Varnarleikurinn lengi vel í mótinu var mjög öflugur hjá Val og svo kom kafli í mótinu sem að við höfum verið að fá á okkur of mörg mörk eins og sá kafli er reyndar ekki langt síðan hann var. Við héldum líka hreinu á móti Víking svo við erum allavega komin með tvo sigra í síðustu þremur ef ég man rétt.

Hvernig sérðu framhaldið fyrir þér í þessari baráttu sem liðið er?

„Bara halda áfram, hugsa um okkur. Ég veit ekkert hvernig hinir leikirnir fóru, þetta er örugglega einhver risa pakki út í allar áttir og get ekki verið að pæla í því, bara pæla í Val.

„Bara einn leikur í einu?“ Spurði undirritaður að lokum. Matthías glotti einfaldlega og svaraði: „Hárétt“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×