Viðsnúningur í rekstri og kostnaðarlækkun „lífsnauðsynleg“ fyrir Icelandair
Lægra eldsneytisverð og sterkari sjóðstaða hjá Icelandair þýðir að horfur eru betri en áður, samkvæmt nýrri greiningu, en verðmatsgengi félagsins hefur verið hækkað og er eftir sem áður langt yfir verðlagningu á markaði. Rekstur Icelandair verður samt áfram erfiður samtímis mikilli fjárfestingarþörf en viðsnúningur og kostnaðarlækkun er sögð vera „lífsnauðsynleg“ fyrir flugfélagið.
Tengdar fréttir
Þrotabúið fengi hlutdeild í mögulegum endurheimtum starfseminnar á Möltu
Hlutabréfaverð Icelandair hefur rokið upp eftir að greint frá áformum þess um að kaupa tæplega helmingshlut í Fly Play Europe en forstjóri flugfélagsins segir aðgang að flugrekstrarleyfi á Möltu geta skapað „talsverð hagræðingartækifæri.“ Gangi samkomulagið eftir þá mun þrotabú Play fá hlutdeild í mögulegum endurheimtum skuldabréfaeigenda þegar starfsemin á Möltu fer af stað.
Afkoman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri eldsneytiskostnaðar
Afkoma Icelandair á fyrsta fjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, meðal annars vegna eignasölu og lægri eldsneytiskostnaður en óttast var, og batamerki er að sjá í rekstri félagsins. Áframhaldandi hátt raungengi og vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana setur hins vegar mark sitt á horfurnar inn í árið og útlit er fyrir lakari afkomu á öðrum fjórðungi en á sama tíma í fyrra þótt einingatekjur muni enn aukast.