Sjóðastýringarisinn heldur áfram að minnka hlut sinn í Íslandsbanka Stærsti erlendi fjárfestirinn í Íslandsbanka hefur á fáeinum vikum minnkað eignarhlut sinn um liðlega fimmtung, en milljarða salan hjá sjóðastýringarfélaginu kemur samhliða umfangsmiklum endurkaupum á eigin bréfum sem hafa staðið yfir hjá bankanum. Innherjamolar 7.2.2026 13:10
Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Vanstilltur aðflugsgeisli flugvallar var meginorsök mannskæðasta flugslyss Íslandssögunnar þegar DC 8-þota Flugleiða fórst á Srí Lanka árið 1978. Þetta er mat þeirra Flugleiðamanna sem rifjuðu upp slysið í þáttaröðinni um Flugþjóðina. Innlent 7.2.2026 07:27
„Á rangri leið“ með háa raunvexti sem feli í sér tilfærslu fjármuna milli kynslóða Áframhaldandi áhersla Seðlabankans á að viðhalda yfir þriggja prósenta raunvaxtaaðhaldi samhliða litlum sem engum hagvexti sýnir svo „ekki verður um villst“ að bankinn er á „fullkomlega rangri leið“, að mati forstjóra eins umsvifamesta fjárfestingafélags landsins, sem kallar eftir umræðu um hvað sé meðal annars eðlilegt raunvaxtastig og verðbólgumarkmið fyrir hagkerfið. Hann segir hið háa vaxtastig ekki vera neitt annað en tilfærsla á fjármunum milli kynslóða þar sem þeir sem eldri eru njóta ávinningsins í formi hærri ávöxtunar á innlán og ellilífeyri. Innherji 6.2.2026 16:41
Horfur í rekstri Eimskips „krefjandi“ og verðmat á félaginu lækkar lítillega Innherjamolar 5.2.2026 17:35
Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Starfsmenn íslenskra flugfélaga, sem sinntu pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu á árum áður, urðu sumir fyrir þeirri óhugnanlegu lífsreynslu að verða vitni að opinberri aftöku. Þetta kemur fram í þætti Sýnar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina. Innlent 4. febrúar 2026 22:40
Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Þingmaður eina stjórnarandstöðuflokks Grænlands hefur þungar áhyggjur af umsvifum Guðmundar Kristjánssonar, iðulega kennds við Brim, í grænlenskum sjávarútvegi. Í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi Grænlendinga í dag spurði hann hvort grænlenska þjóðin yrði af fé vegna innherjaviðskipta til Íslands og hvort Arctic Prime-samsteypan sem Guðmundur er stór eigandi í sé í raun leppur sem gætir hagsmuna Íslendinga. Viðskipti innlent 4. febrúar 2026 18:27
Vænta þess að tekjur Alvotech af vörusölu tvöfaldist frá fyrri fjórðungi Útlit er fyrir að umtalsverður tekjuvöxtur hafi verið hjá Alvotech á síðasta ársfjórðungi, drifinn áfram aukinni vörusölu, sem ætti að þýða að heildartekjur ársins 2025 verði við efri mörk útgefinnar afkomuspár. Innherjamolar 3. febrúar 2026 17:18
Aðeins nokkrum milljónum króna frá því að fara yfir tíu prósenta múrinn í Skaga Eftir að hafa stækkað enn frekar við stöðu sína í Skaga í liðinni viku þá vantar núna aðeins nokkrar milljónir króna að markaðsviði upp á að fjárfestingafélag Bjarna Ármannssonar brjóti tíu prósenta múrinn sem myndi kalla á heimild til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækinu. Innherji 3. febrúar 2026 15:22
Hlé á vaxtalækkunarferlinu þar til skýr merki um verðbólguhjöðnun birtast Mikil aukning verðbólgunnar að undanförnu, einkum vegna hækkunar bifreiðaverðs í kjölfar vörugjaldabreytinga, kallar á hlé á vaxtalækkunarferlinu þar frekari vísbendingar um hjöðnun fara að birtast, að sögn aðalhagfræðings Kviku. Verðbólgumælingin í janúar setur peningastefnunefnd í óþægilega stöðu en verðhækkanir á fremur breiðum grunni staðfesta sumpart áhyggjur hennar af kostnaðarþrýstingi af völdum mikilla launahækkana. Innherji 2. febrúar 2026 13:47
Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Gullverð hefur lækkað nokkuð skarp á heimsvísu síðan á fimmtudag, þegar það náði sögulegum hæðum. Samhliða lækkun gullverðs hefur gengi íslenska námafélagsins Amaroq lækkað um rúmlega ellefu prósent. Viðskipti innlent 2. febrúar 2026 10:57
Viðsnúningur undir lok ársins þegar fjármagn streymdi í hlutabréfasjóði Fjárfestar bættu talsvert við stöðu sína í innlendum hlutabréfasjóði undir lok síðasta árs sem þýddi að hreint flæði fyrir árið í heild sinni var rétt fyrir ofan núllið. Á undanförnum fjórum árum hafa fjárfestar hins vegar almennt sýnt hlutabréfasjóðum lítinn áhuga og beint fjármagni sínu fremur í áhættuminni eignir. Innherjamolar 1. febrúar 2026 12:18
Olíusjóðurinn bætir við sig í íslenskum verðbréfum fyrir um tuttugu milljarða Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, bætti verulega við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á liðnu ári en umfang verðbréfaeignar sjóðsins hér á landi er að nálgast sömu slóðir og þegar mest var fyrir tveimur áratugum. Innherji 31. janúar 2026 12:54
Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbanka eru ósammaála í spám sínum um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans. Íslandsbanki spáir óbreyttum stýrivöxtum en Landsbankinn spáir 0,25 prósentustiga hækkun. Viðskipti innlent 30. janúar 2026 13:58
Stóru sjóðirnir á söluhliðinni á fyrsta ári vel heppnaðs samruna JBT og Marels Allir helstu íslensku lífeyrissjóðirnir voru á söluhliðinni á fyrsta árinu eftir risasamruna JBT og Marels, einkum tveir af stærstu sjóðum landsins, þegar þeir minnkuðu nokkuð stöðu sína í sameinuðu fyrirtæki og seldu fyrir samtals vel á annan tug milljarða króna. Afkoma félagsins hefur að undanförnu ítrekað verið umfram væntingar en mikil veiking Bandaríkjadals hefur litað ávöxtun innlendra fjárfesta í krónum. Innherji 30. janúar 2026 11:37
Eik klárar sölu á einu lengsta skuldabréfi sem skráð félag hefur gefið út Fasteignafélagið Eik lauk í gær útboði á nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki til fjörutíu ára, sem er á lokagjalddaga í febrúar árið 2066, en fá dæmi eru um að skráð félög hafi gefið út bréf með svo löngum líftíma á innlendum markaði. Innherjamolar 30. janúar 2026 09:08
„Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Erlendum karlmanni, á leið í heimsókn til tengdafjölskyldu sinnar á Íslandi, var meinaður aðgangur í flugvél Icelandair því gildistími vegabréfs hans var innan við þrír mánuðir. Með neyðarvegabréf í hendi keypti hann nýtt og dýrt flug. Hann rak í rogastans þegar hann ætlaði að halda heim á leið viku síðar og átti ekki lengur sæti í fluginu. Formaður Neytendasamtakanna segir reglu flugfélagsins óskiljanlega en forsvarsmenn Icelandair segja að um vel þekkt fyrirkomulag sé að ræða. Neytendur 30. janúar 2026 06:30
Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. Viðskipti innlent 29. janúar 2026 21:42
Sameinaður sjóður yrði stærsti hluthafinn í fjölmörgum Kauphallarfélögum Verði af sameiningu Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Birtu, sem myndi búa til risastóran leikanda á íslenskum fjármálamarkaði, þá yrði sjóðurinn stærsti einstaki fjárfestirinn í fjölmörgum skráðum félögum og meðal annars fara með virkan eignarhlut í nokkrum fjármálafyrirtækjum. Innherji 29. janúar 2026 16:31
Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Stjórnarformaður Vélfags segist ekki hafa beinar upplýsingar um að reynt hafi verið að stofna nýtt félag fyrir starfsemina eftir að fjármunir þess voru frystir. Hann hafi fjarlægt tölvur úr höfuðstöðvum fyrirtækisins að beiðni eigenda þess. Lögmaður Vélfags segir fréttir um slíkt „þvælu“. Innlent 29. janúar 2026 14:49
Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Hagar hafa ráðið Sesselíu Birgisdóttur til að leiða nýtt svið innan samstæðunnar, viðskiptavild, upplifun og miðlun. Í tilkynningu segir að með stofnun sviðsins sé stigið mikilvægt skref í áframhaldandi þróun Haga með aukinni áherslu á upplifun viðskiptavina, nýjar tekjuleiðir og markvissa miðlun. Viðskipti innlent 29. janúar 2026 12:44
Íslandsbanki leysir til sín allt hlutafé í Hringrás Endurvinnslufyrirtækið Hringrás, sem er að stórum hluta óbeint í eigu lífeyrissjóða, hefur verið yfirtekið af Íslandsbanka en rekstur þess hefur gengið fremur erfiðlega samtímis talsverðri skuldsetningu. Stutt er síðan til stóð að selja félagið fyrir milljarða en þau viðskipti féllu niður. Innherji 29. janúar 2026 11:26
Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði. Viðskipti innlent 28. janúar 2026 21:31
Uppsagnir hjá Alvotech Fimmtán starfsmönnum Alvotech á Íslandi var sagt upp í byrjun vikunnar og öðrum eins fjölda á skrifstofum félagsins erlendis. Viðskipti innlent 28. janúar 2026 11:05
Fjárfestarnir sem veðja á að Drangar geti hrist upp í dagvörumarkaðinum Þegar félagið Drangar, sem ætlar að hasla sér völl á dagvörumarkaði í samkeppni við risana tvo sem eru þar fyrir, kláraði yfir þriggja milljarða útboð undir lok síðasta árs voru fjárfestarnir sem bættust við hluthafahópinn að stórum hluta fáeinir lífeyrissjóðir, tryggingafélög og einkafjárfestir. Með þeirri fjármögnun var hægt að halda áfram vinnu við að bæta reksturinn í matvöruhluta Dranga en vænta má þess að verslunum undir merkjum Prís muni fjölga á næstunni. Innherji 27. janúar 2026 12:44
Kemur frá Icelandair til Varðar Helga Huld Bjarnadóttir er nýr þjónustustjóri þjónustustýringar hjá Verði tryggingum og hefur hún nú þegar hafið störf. Viðskipti innlent 27. janúar 2026 09:02