Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar 21. ágúst 2026 11:00 Ég var að lesa greinargerð SFS þar sem samtökin vara við því að ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi. Ástæðurnar eru einkum þríþættar: breytingar á fiskveiðistjórn, aukið erlent eignarhald og samkeppni við niðurgreiddan sjávarútveg innan sambandsins. Þessi þrjú atriði eru sannarlega mikilvæg, en þau má einnig lesa sem rök fyrir því að Ísland ætti að sækja um aðild. Í fyrsta lagi byggir skýrslan á þeirri forsendu að ESB myndi skerða aflaheimildir Íslands. Reynslan af EES-samstarfi sýnir þó að Ísland hefur sterka stöðu í samningum um auðlindanýtingu og gæti tryggt sér sérlausnir einmitt á grundvelli þeirrar staðreyndar að íslenskur sjávarútvegur er sterkur og stjórnun fiskveiða tekur tillit til sjálfbærrar nýtingar auðlinda. Aðild gæti jafnvel styrkt stöðu Íslands með formlegri aðkomu að sameiginlegri fiskveiðistefnu, auk þess sem ESB hefur á undanförnum árum endurskoðað reglur til að tryggja enn betur sjálfbærni og gagnsæi. Í öðru lagi er varað við erlendu eignarhaldi og vissulega er það áhygguefni. Aðild að ESB myndi ekki sjálfkrafa auka erlenda fjárfestingu í íslenskum sjávarútvegi, heldur gæti Ísland – sem fullgilt aðildarríki – samið um varanlegar undanþágur líkt og önnur ríki hafa gert fyrir undirstöðu iðnað sinna landa. Þá er bent á að fiskvinnsla innan ESB njóti opinbers stuðnings. Þetta má einnig túlka sem tækifæri: með aðild fengi Ísland aðgang að fjárfestingarsjóðum ESB sem gætu styrkt íslenska vinnslu, nýsköpun og hliðarafurðaframleiðslu. Í stað þess að óttast samkeppni gæti Ísland nýtt sér stóraukna fjárfestingargetu sambandsins til að efla virðiskeðjuna heima fyrir. Frumkvöðla umhverfið á Íslandi er gríðar sterkt og við erum leiðandi í heiminum þegar kemur að nýsköpun á sviði fullnýtingar fiskafurða. Innganga í ESB myndi ekki slökkva þann sköpunarkraft sem býr í íslensku hugvitsfólki, heldur þvert á móti hvetja það og styrkja. Að lokum er lögð áhersla á að sjávarútvegur sé hornsteinn byggða og að verðmæti gætu tapast ef vinnsla færist úr landi. En það er einmitt veikleiki í núverandi kerfi að íslenskur útvegur er háður sveiflum á litlum mörkuðum og takmörkuðum aðgangi að fjármagni. Aðild að ESB myndi tryggja algert tollfrelsi á afurðum, óháð vinnslustigi, stöðugan markaðsaðgang, aukna fjárfestingu og sterkari byggðatengingu með sameiginlegum byggðasjóðum sem gætu stutt við sjávarbyggðir. Þannig má lesa greinargerðina sem áminningu um að Ísland stendur frammi fyrir kerfislegum áskorunum sem aðild að ESB gæti hjálpað til við að leysa. Í stað þess að óttast breytingar gæti Ísland nýtt aðild til að tryggja sjálfbæran, samkeppnishæfan vel rekinn sjávarútveg – og þar með styrkt efnahagslegt öryggi landsins. Höfundur víðtæka reynslu innan sjávarútvegs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjávarútvegur Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar