Innlent

Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Lítið kom fram á vef fjármálaeftirlitsins um málið.
Lítið kom fram á vef fjármálaeftirlitsins um málið. Vísir/Vilhelm

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli einstaklings sem miðlaði innherjaupplýsingum um fyrirhugaðan samruna. Hann féllst á greiðslu sektar upp á 65 milljónir króna.

Samkvæmt tilkynningu frá Seðlabankanum miðlaði einstaklingurinn ótilgreindi innherjaupplýsingunum á fundi með þeim hætti að fundargestir skildu efni þeirra og áttuðu sig á þýðingu þeirra.

Fjármálaeftirlitið taldi ekki miðlunina hafa farið fram í eðlilegum tengslum við starf, stöðu eða skyldur málsaðila og taldi hana því ólögmæta.

Á fundi nefndarinnar sjöunda maí var talið að málið væri að fullu upplýst og að skilyrði væru til að ljúka því með sátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×