Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Lovísa Arnardóttir skrifar 20. ágúst 2026 12:30 Hildur segir meirihlutann vilja verja lægstu tekjuhópana og að borgarfulltrúar líti sér nær. Vísir/Lýður Valberg Hildur Björnsdóttir borgarstjóri lagði til á fundi borgarráðs í dag að tekjulágir geti fengið heimsenda máltíð og máltíð í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar á 1.500 krónur en ekki 1.900 eins og velferðarráð lagði til í vikunni. Á sama tíma lagði hún til að borgarfulltrúar greiddu meira fyrir hádegismat sinn.
Greint var frá því í vikunni að verð á máltíðum afgreiddum af Reykjavíkurborg í heimsendingu til íbúa í þjónustuíbúðum og í félagsmiðstöðvum aldraðra muni hækka um allt að sjötíu prósent, úr 1.100 í 1.900, eða um allt að 70 prósent. Í greinargerð meirihlutans sagði að bregðast þyrfti við þeirri staðreynd að gjaldskrá hafi verið langt undir kostnaðarverði. Gildir í félagsmiðstöð og heimsendingu Tillaga borgarstjóra á fundi borgarráðs í dag gerir ráð þó fyrir ráð fyrir því að notendur matarþjónustu Reykjavíkurborgar sem hafa tekjur undir nánar skilgreindu tekjuviðmiði greiði 1.500 krónur fyrir máltíð í stað 1.900 króna. Lægra gjaldið gildi óháð því hvort máltíðar er neytt í félagsmiðstöð, þjónustuíbúðum eða hún er heimsend. „Við teljum nauðsynlegt að verja lægstu tekjuhópana gegn þungum gjaldskrárhækkunum og leggjum því til sérstakar niðurgreiðslur fyrir tekjulægsta hópinn. Þá vek ég athygli á því að þrátt fyrir almennar hækkanir á máltíðum fyrir eldri borgara eru heimsendar máltíðir enn hagstæðari í Reykjavík en í ýmsum nágrannasveitarfélögum,” segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í tilkynningu um tillöguna. Gróft kostnaðarmat tillögunnar gerir ráð fyrir því að tíu til tuttugu prósent af um 310.000 seldum máltíðum á ári verði niðurgreiddar um 400 krónur sem viðbótarniðurgreiðsla eða allt að 33 milljónir á ári. Tillagan gerir ráð fyrir að velferðarsviði verði falið að útfæra tekjuviðmið, fyrirkomulag staðfestingar tekna og framkvæmd niðurgreiðslunnar og að endanlegt kostnaðarmat og tillaga að fjármögnun verði lögð fyrir borgarráð þegar útfærslan liggur fyrir. Lægra gjaldið taki gildi eins fljótt og kostur er að lokinni nauðsynlegri kerfis- og stjórnsýsluútfærslu. Borgarfulltrúar borga meira Í annarri tillögu á fundi borgarráðs var svo lagt til að borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar greiði 1.900 krónur fyrir máltíðir í stjórnsýsluhúsum borgarinnar, en breytingin felur í sér 95 prósenta hækkun á fyrra gjaldi. „Samhliða teljum við nauðsynlegt að borgarfulltrúar líti sér nær og taki á sig gjaldskrárhækkun sjálfir. Við höfum því lagt til að borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar greiði 1900 krónur fyrir mat í mötuneytum Ráðhúss og Höfðatorgs, en gjaldið er í dag 974 krónur,“ segir Hildur í tilkynningu málsins. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður velferðarráðs, sagði í viðtali eftir að greint var frá breytingunni fyrr í vikunni að það hafa verið áfall að sjá, eftir að hafa tekið við sem formaður, hver vinnubrögð fyrri meirihluta höfðu verið. Gamli meirihlutinn hafi trekk í trekk verið búinn að skuldbinda borgina til að veita þjónustu sem ekki hafi fyllilega verið gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Lokað á Vitatorgi um helgar Auk gjaldskrárhækkana verður lokað fyrir þjónustu á Vitatorgi um helgar. Þar var hægt að mæta alla daga vikunnar í hádegismat en frá og með 1. september verður lokað fyrir það. Til útskýringar á helgarlokun sagði Ragnhildur Alda að það væri of dýrt að halda þjónustunni úti um helgar eftir að eldhúsið lokaði. Matur yrði þó áfram afgreiddur um helgar af Reykjavíkurborg eins og áður í heimsendingum og til íbúa í þjónustuíbúðum.
Reykjavík Eldri borgarar Félagsmál Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Sjá meira