Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Árni Sæberg skrifar 20. ágúst 2026 16:36 Icelandair hefur keypt tæpan helming í dótturfélagi Play. Vísir/Vilhelm Icelandair Group hf. hefur gengið frá kaupum á 49 prósenta eignarhlut í Fly Play Europe Holdco ehf., af FPE hs., sjóði í rekstri Ísafold Capital Partners hf., en dótturfélag þess, Fly Play Europe Limited á Möltu er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Kaupin eru í samræmi við viljayfirlýsingu sem Icelandair tilkynnti um fyrr á árinu.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að með viðskiptunum öðlist Icelandair aðgang að viðbótarflugrekstrarleyfi innan Evrópu sem muni auka sveigjanleika félagsins, skapa möguleika til einföldunar og hagræðingar í flugrekstrinum á Íslandi en á sama tíma styðja við áframhaldandi uppbyggingu á alþjóðlegri starfsemi og skapa ný viðskiptatækifæri. Viðskiptin séu hluti af stefnu Icelandair um að auka samkeppnishæfni, fjölbreytni tekjustoða og rekstrarsveigjanleika til lengri tíma. Samkvæmt kaupsamningi kaupir Icelandair 49 prósenta hlut í FPE og kaupverðið nemi 686 þúsund bandaríkjadölum eða 83,4 milljónum króna. Samhliða viðskiptunum hafi hluthafasamkomulag verið gert, samið um fjármögnun og möguleika Icelandair til að auka eignarhlut sinn í félaginu síðar. Viðskiptin séu meðal annars háð fyrirvara um að samkomulag náist við maltnesk flugmálayfirvöld um áframhaldandi notkun flugrekstrarleyfis FPE. Viðskiptin hafi óveruleg áhrif á afkomu og efnahag Icelandair á árinu 2026 en feli í sér tækifæri til lengri tíma litið. „Að eignast hlut í flugrekstrarleyfi á Möltu er fyrst og fremst hugsað til þess að auka sveigjanleika í rekstri, styrkja samkeppnishæfni Icelandair og skapa ný tækifæri – allt til þess að tryggja áframhaldandi uppbyggingu tengimiðstöðvarinnar í Keflavík og þar með störf og öflugt starfsumhverfi í flugrekstri á Íslandi til framtíðar,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.
Icelandair Play Gjaldþrot Play Flug Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Erlent félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Erlent félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Sjá meira