Það er ekki bara fólkið sem þarf að spila með Andri Reyr Haraldsson skrifar 20. ágúst 2026 14:47 Seðlabankinn hækkaði enn og aftur vexti í gær þrátt fyrir að lýsa því sjálfur yfir að hagkerfið sé að kólna. Aukning verðbólgunnar að undanförnu skýrist að sögn að stærstum hluta af hækkun opinberra gjalda og áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Í viðtölum við Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra í gær fór sama gamla platan hins vegar aftur á fóninn: Launin eru vandamálið og verkalýðshreyfingin er á meðal þeirra sem axla þarf ábyrgð á ástandinu, sagði hann við RÚV. Í svipaðan streng tók Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, í gær þegar hann sagði að rót verðbólguvandans lægi hjá vinnumarkaðnum og hefði gert það lengi. Staðreyndin er sú að verkalýðshreyfingin er líklega síðasti aðilinn sem þarf fyrirlestur um ábyrgð í þessum efnum. Við gerð síðustu kjarasamninga gerði verkalýðshreyfingin nákvæmlega það sem kallað var eftir. Samið var um mjög hóflegar launahækkanir. Þannig sameinuðust vinnandi stéttir á almennum markaði um að leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna. Það var gert í þeirri trú að fleiri ætluðu að spila með, eins og ítrekað hefur verið bent á. Atvinnulífið átti að halda aftur af verðhækkunum og hið opinbera átti að sýna aðhald samhliða aðgerðum í húsnæðismálum. Nú þegar kjarasamningar eru við það að bresta liggur fyrir að launafólk stóð eitt við sitt. Opinber gjöld hafa hækkað meira en hófi gegnir og nauðsynjavörur hafa hækkað upp úr öllu valdi. Stórfyrirtæki hafa aukið hagnað sinn og sums staðar hafa forstjórar og bankastjórar fengið launahækkanir upp á tveggja stafa prósentutölu. Já, Benedikt í Arion, ég er að benda á þig. Það er í besta falli grátbroslegt að seðlabankastjóri skuli kalla verkalýðshreyfinguna til ábyrgðar. Hún er einmitt sá aðili sem hefur reynt að grípa í taumana. Mánuðum saman hafa fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar bent á að forsendur kjarasamninganna væru að veikjast. Við höfum kallað eftir því að aðrir standi við sinn hluta. Við höfum varað við því hvert stefnir. Samkomulag eins og gert var við gerð síðustu kjarasamninga virkar ekki ef bara annar aðilinn heldur aftur af sér. Það gengur ekki upp að almenningur eigi að sætta sig við hóflegar hækkanir launa á meðan reikningarnir hækka frá mánuði til mánaðar. Það gengur ekki upp þegar ríki og sveitarfélög hækka gjöldin í sífellu og þegar matvöruverslanir, olíufélög og bankar maka krókinn sem aldrei fyrr. Það er þyngra en tárum taki að uppsögn kjarasamninga þurfi að koma til svo forsvarsmenn stórfyrirtækja og hins opinbera skilji að þetta átti að vera sameiginlegt verkefni. Höfundur er varaformaður RSÍ og formaður FÍR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar