Hvað þýðir já fyrir bændur? Stefán Magnússon skrifar 20. ágúst 2026 14:31 Í kosningunum 29. ágúst nk. munu landsmenn taka afstöðu til þess hvort hefja skuli aðildarferli að ESB. Eðlilegast væri að meta þá ákvörðun fyrst og fremst út frá þjóðhagslegum þáttum; hvort hag Íslands væri betur borgið innan ESB eða utan þess. Ekki er hægt að sjá neina knýjandi þörf fyrir Ísland að ganga í sambandið, enda er hagsmunum landsins vel fyrir komið með EES-samningnum. Ísland er ríkt af auðlindum og þekkingu og efnahagur landsins sterkur. Landið skorar hátt á flestum mælikvörðum um velferð og hagsæld. Því skýtur skökku við þegar já-sinnar tala um að rétt sé að „kíkja í pakkann“. Regluverk sambandsins liggur að langmestu leyti fyrir og aðildarríki þurfa að taka það upp. Svigrúm til varanlegra undanþága er takmarkað, þótt samið geti verið um tímabundnar undanþágur eða aðlögunartíma. Ef já verður niðurstaða kosninganna fer af stað aðildarferli sem gæti tekið mörg ár. Sú óvissa sem fylgir svo löngu ferli getur orðið dýrkeypt fyrir íslenskt atvinnulíf. Sú atvinnugrein sem ég starfa við gæti orðið fyrir verulegu höggi. Litlar líkur eru á að ráðist verði í nýframkvæmdir eða umfangsmikið viðhald fasteigna meðan slík óvissa ríkir. Ef þetta er skoðað út frá rekstri okkar hjóna í mjólkurframleiðslu vill svo til að við erum komin á starfslokaaldur, þó enn undir sjötugu. Óvissan næstu árin gæti gert okkur mjög erfitt fyrir að selja reksturinn og jörðina. Það er erfitt að sjá fyrir sér að lánastofnun láni hugsanlegum kaupendum til kaupanna ef framtíðarsýnin er veruleg lækkun afurðarverðs og verulega minni innlend framleiðsla vegna aukins innflutnings. Ef tilboð fengist í jörðina gæti það orðið svo lágt að kaupverðið dygði ekki einu sinni fyrir áhvílandi skuldum. Eftir ævistarfið gætum við því þurft að þakka fyrir að sleppa frá því án gjaldþrots. Þetta er sú staða sem við hjónin, ásamt fjölda annarra bænda, munum standa frammi fyrir ef meirihluti þjóðarinnar kýs að „kíkja í pakkann“. Höfum einnig hugfast að bændur í ESB-ríkjum eru víða ekki sáttir við sína stöðu. Það hefur meðal annars birst í umfangsmiklum og ítrekuðum mótmælum bænda víða um Evrópu og óánægju þeirra með ýmsa þætti landbúnaðarstefnu ESB. Það kostar að framleiða landbúnaðarvörur. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að úrvals matvæli verði framleidd til lengdar fyrir verð sem stendur ekki undir framleiðslukostnaði. Hvað þýðir Já fyrir bændur? Í kosningunum 29. ágúst nk. munu landsmenn taka afstöðu til þess hvort hefja skuli aðildarferli að ESB. Eðlilegast væri að meta þá ákvörðun fyrst og fremst út frá þjóðhagslegum þáttum; hvort hag Íslands væri betur borgið innan ESB eða utan þess. Engin knýjandi þörf Ekki er hægt að sjá neina knýjandi þörf fyrir Ísland að ganga í sambandið, enda er hagsmunum landsins vel fyrir komið með EES-samningnum. Ísland er ríkt af auðlindum og þekkingu. u og Eefnahagur landsins er líka sterkur. Landið skorar hátt á flestum mælikvörðum um velferð og hagsæld. Því skýtur skökku við þegar já-sinnar tala um að rétt sé að „kíkja í pakkann“. Regluverk sambandsins liggur að mestu leyti fyrir og aðildarríki þurfa að taka það upp. Svigrúm til varanlegra undanþága er takmarkað, þótt samið geti veriðhægt sé að semja um tímabundnar undanþágur eða aðlögunartíma. Ef já … Ef já verður niðurstaða kosninganna fer af stað aðildarferli sem gæti tekið mörg ár. Sú óvissa sem fylgir svo löngu ferli getur orðið dýrkeypt fyrir íslenskt atvinnulíf. Sú atvinnugrein sem ég starfa við gæti orðið fyrir verulegu höggi. Litlar líkur eru á til að ráðist verði í nýframkvæmdir eða umfangsmikið viðhald fasteigna meðan slík óvissa ríkir. Per sónulegt sjónarhorn Ef þetta er skoðað út frá rekstri okkar hjóna í mjólkurframleiðslu vill svo til að við erum komin á starfslokaaldur, þó enn undir sjötugu. Óvissan næstu árin gæti gert okkur mjög erfitt fyrir að selja reksturinn og jörðina. Það er erfitt að sjá fyrir sér að lánastofnun láni hugsanlegum kaupendum til kaupanna ef framtíðarsýnin er veruleg lækkun afurðarverðs og verulega minni innlend framleiðsla vegna aukins innflutnings. Ef tilboð fengist í jörðina gæti það orðið svo lágt að kaupverðið dygði ekki einu sinni fyrir áhvílandi skuldum. Eftir ævistarfið gætum við því þurft að þakka fyrir að sleppa frá því starfslokum án gjaldþrots.— Þetta er sú staða sem við hjónin, ásamt fjölda annarra bænda, munum standa frammi fyrir ef meirihluti þjóðarinnar kýs að „kíkja í pakkann“. Bæn dur í ESB Höfum einnig hugfast að bændur í ESB-ríkjum eru víða ekki sáttir við sína stöðu. Það hefur meðal annars birst í umfangsmiklum og ítrekuðum mótmælum bænda víða um Evrópu og óánægju þeirra með ýmsa þætti í landbúnaðarstefnu ESB. Það hefur kostnað í för með sérar að framleiða landbúnaðarvörur. Ekki er hægt að gera ráð fyrir að úrvals matvæli verði framleidd til lengdar fyrir verð sem stendur ekki undir framleiðslukostnaði. Höfundur er bóndi í Eyjafirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar