Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Áróra L Davíðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 20:57 Grunnskólabörnum og foreldrum þeirra verður boðið upp á aðstoð við heimanám á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Vísir/Vilhelm Samtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg munu taka höndum saman og bjóða öllum grunnskólabörnum í Reykjavík upp á aðstoð við heimanám á bókasöfnum í borginni skólaárið 2026-2027. Verkefnið nýtur styrks úr Velferðarsjóði barna.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar en þar segir að samningur hafi verið undirritaður af Hildi Björnsdóttur borgarstjóra, Sigvalda Agli Lárussyni, formanni Heimilis og skóla, og Kára Stefánssyni, stjórnarformanni Velferðarsjóðs barna. Reykjavíkurborg leggi til húsnæði í útibúum Borgarbókasafnsins í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi og sjálfboðaliðar frá Heimili og skóla veiti börnunum og foreldrum þeirra aðstoð og stuðning við heimanámið. Kári Stefánsson, stjórnarmaður Velferðarsjóðs barna, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri og Sigvaldi Egill Lárusson formaður Heimilis og skóla undirrituðu samning í Borgarbókasafninu í Kringlunni.Reykjavíkurborg Samstarfsaðilar telji verkefnið mikilvægt framlag til menntunar og velferðar barna í Reykjavík. Markmið verkefnisins sé að auðvelda börnum og fjölskyldum þeirra að takast á við heimanám með auknum stuðningi og aðgengi að aðstoð. „Markmiðið er fyrst og fremst að stuðla að jöfnum tækifærum barna til náms í Reykjavík og veita þeim aðstoð við heimanám sem á þurfa að halda. Við byrjum á tveimur útibúum Borgarbókasafns í borginni sem eru með góðar strætósamgöngur. Þjónustan stendur öllum grunnskólabörnum í Reykjavík til boða,“ er haft eftir Hildi Björnsdóttur í tilkynningunni. Verkefnið verði starfrækt skólaárið 2026–2027 og hefjist í september. Vonast sé til að hægt verði að fjölga starfsstöðvum verkefnisins þegar starfsemin hafi fest sig í sessi og reynsla fengist af framkvæmdinni.
Reykjavík Grunnskólar Börn og uppeldi Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira