Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar 18. ágúst 2026 08:46 Nú hefur eina eftirstandandi hvalveiðifyrirtækið greint frá áformum sýnum um að nýta hvalkjötið sem veiddist í sumar í framleiðslu á járnbætiefni. Þessu er stillt upp sem leið til að hjálpa fátækum konum og börnum í Afríku og víðar. Nú skulum við aðeins staldra við og skoða samhengið. Sjáum stóru myndina Járnskortur er oft afleiðing takmarkaðs aðgengis að næringu almennt. Þess vegna er mest um járnskort þar sem fátækt og hungursneyð eru hvað mest. Það vill svo til að járnskortur er einn algengasti næringarskorturinn þegar aðgengi að fjölbreyttu og næringarríku fæði er takmarkað og þá sérstaklega hjá þunguðum konum og konum sem fá meiri blæðingar en aðrar. Ein lausn er að gefa þessu fólki járnbætiefni og önnur bætiefni sem því gæti vantað. En það er skammtímalausn í besta lagi og kemur ekki nálægt því að leysa rót vandans. Enda ef hvalveiðimenn hefðu sérstakan áhuga á því að leysa einhver alvöru vandamál heimsins, væru þeir ekki að drepa hvali, sem eru gríðarlega mikilvægir fyrir heilsu sjávar og andrúmsloftið okkar. En það er til lausn sem tæklar rót vandans. Og það sem meira er, hún er einföld, umhverfisvæn, siðferðisleg og það er hægt að byrja strax. Stór rannsókn frá Oxford háskólanum sýndi að ef mannkynið myndi færast yfir í jurtamiðað mataræði, gætum við minnkað landbúnaðarland í heiminum um 75%. Það myndi losa gríðarleg landsvæði sem gætu nýst til matvælaframleiðslu og endurheimtar vistkerfa. Í dag eru um 645 milljónir manna sem búa við langvarandi hungur. Áætlanir benda til þess að ef ræktun sem nú fer meðal annars í dýrafóður og eldsneytisframleiðslu færi þess í stað beint til manneldis, gæti fæðuframboð úr ræktun aukist um allt að 70% — fræðilega nóg til að fæða um fjóra milljarða manna til viðbótar. Já, þú last þetta rétt. Staðreyndin er sú að ef við myndum sniðganga dýraafurðir, gætum við útrýmt hungursneyð mannkyns á einu bretti. Sirka fimm sinnum. Það er að vísu einföldun því að auðvitað spila fleiri þættir þar inn í eins og fátækt, átök, dreifing og aðgengi að mat. En þetta eru samt tölurnar. En hagsmunir hvalveiðimanna liggja annars staðar. Það þarf að finna nýjan markað fyrir afurð sem á sífellt erfiðara uppdráttar. Sama togstreita blasir við víðar í framleiðslu dýraafurða, þar sem fjárhagslegir hagsmunir rekast á velferð dýra, loftslagsmarkmið og vernd vistkerfa. En við þurfum ekki að reiða okkur á þessa aðila. Við, sem sjáum lengra en eigið excel skjal. Við, sem mælum ríkidæmi í sterkum samböndum við okkar nánustu. Við, sem metum lífsgæði okkar eftir heilsu umhverfisins sem við lifum í. Við, sem metum verðleika samfélagsins eftir því hvernig það kemur fram við þau sem minnst vald hafa — hvort sem þau eru af öðru þjóðerni, öðrum kynþætti eða annarri dýrategund. Við getum, strax í dag, tekið ákvörðun um að vera hluti af lausninni og fært okkur yfir í að borða plöntumiðað fæði. Það myndi ekki aðeins draga úr hungri og losa gríðarstór landsvæði, heldur einnig snarminnka gróðurhúsaáhrif, draga úr þrýstingi á vistkerfi og bæta mataröryggi. Þá eru ótalin áhrif á sýklalyfjanotkun, hættu á smitsjúkdómum frá dýrum og, síðast en ekki síst, velferð dýranna. Horfum lengra og tökum frumkvæðið. Höfundur situr í stjórn Samtaka um dýravelferð á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar