Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar 17. ágúst 2026 09:00 Nú styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræður við ESB. Eðlilega eru margir að horfa í lækkun vaxta og verðbólgu í samhengi við aðildarviðræður, enda er það eitt stærsta hagsmunamál íslenskra heimila og fyrirtækja. Samgöngubætur breyta samfélögum Þóroddur Bjarnason prófessor skrifaði grein í vikunni þar sem hann greinir áhrif aðildar að ESB á landsbyggðirnar. Það hafa ekki margir verið að koma inn með það sjónarhorn í umræðuna sem er þó afar mikilvægt. Þar nefnir hann meðal annars tækifærin er kemur að samgönguframkvæmdum og það kveikti í mér. Mæli heilshugar með grein Þórodds. Ég er mikil baráttumanneskja fyrir bættum innviðum og gott sem elska bundið slitlag. Ég hef upplifað sjálf sem íbúi á Vestfjörðum hvernig jarðgangaframkvæmdir geta breyta heilu samfélögunum, hversu mikil ein brú getur stytt vegalengdir og hversu miklu munar að losna við fjallvegi. Þetta snýst samkeppnishæfni, búsetuskilyrði og öryggi. Í grein Þórodds fer hann yfir hvernig Evrópusambandið styður við samgöngubætur og hvernig það gæti litið út fyrir Ísland. Samgöngur eru einn af lykilþáttum byggðastefnu Evrópusambandsins. Markmiðið er að byggja upp öruggt, skilvirkt og sjálfbært samgöngukerfi sem tengir ríki og svæði Evrópu saman og tryggir greiðar leiðir fyrir fólk og vörur. Eitt mikilvægasta fjármögnunartæki ESB á þessu sviði er Samtengisjóður Evrópu (Connecting Europe Facility, CEF). Sjóðurinn styður uppbyggingu samgönguinnviða sem falla undir samevrópska samgöngunetið, TEN-T, meðal annars með styrkjum til framkvæmda, undirbúnings og nýsköpunar. Tækifæri fyrir Ísland Aðild að ESB gæti því skapað ný tækifæri fyrir Ísland til fjármögnunar samgöngumannvirkja. Ísland er þegar hluti af TEN-T-kortlagningunni í gegnum EES-samstarfið og þar eru meðal annars tilgreindir mikilvægir vegir, hafnir og flugvellir. Með aðild gæti Ísland fengið aukinn aðgang að fjármögnun úr CEF vegna verkefna sem falla að markmiðum netsins. Þar gætu komið til álita framkvæmdir við vegi, hafnir, flugvelli og aðra mikilvæga samgönguinnviði, eftir því hvaða verkefni uppfylla skilyrði sjóðsins. Ólíklegt er hins vegar að Ísland ætti rétt á stuðningi úr Samheldnissjóði ESB, þar sem slíkur stuðningur er almennt ætlaður ríkjum þar sem þjóðartekjur á mann eru undir 90% af meðaltali ESB. Ísland er vel yfir þeim mörkum. Í aðildarviðræðum væri engu að síður mikilvægt að leggja áherslu á sérstöðu Íslands. Landið er stórt, strjálbýlt og harðbýlt, samgöngumannvirki eru kostnaðarsöm og góðar samgöngur hafa óvenju mikla þýðingu fyrir byggðaþróun. Ísland hefði því ríka hagsmuni af því að tryggja að þessar landfræðilegu aðstæður fengju viðeigandi vægi í samningum um þátttöku landsins í byggða- og samgönguáætlunum ESB. Ekki væri þó hægt að ganga að sérstakri undanþágu eða viðbótarstuðningi sem vísum fyrirfram og þyrfti að taka upp í aðildarviðræðum. Annað sem skiptir líka máli er kemur uppbyggingu samgönguinnviða er að Fjárfestingarbanki Evrópu (EIB) veitir langtímalán á hagstæðum kjörum. Þar með gæti Ísland framkvæmt meira fyrir sama pening þar sem vaxtakostnaður væri mun minni. Aðildarviðræður við ESB er risastórt tækifæri fyrir uppbyggingu innviða og hinar dreifðu byggðir. Tækifæri sem ég vil ég kanna betur. Ég vil fá að sjá hvernig samningur gæti litið út og þess vegna ætla ég að segja JÁ þann 29.ágúst nk. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arna Lára Jónsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Samfylkingin Samgöngumál Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar