Golf

Óliver vann opna breska í piltaflokki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Óliver á vellinum í dag
Óliver á vellinum í dag Mynd/GSÍ

Íslenski kylfingurinn Óliver Elí Björnsson vann í dag opna breska áhugamannamótið í piltaflokki. 

Í úrslitum mætti hann Svíanum Ludwig Libera og vann því alla sína sex leiki í holukeppni á mótinu. Kylfingarnir léku 36 holur í úrslitum og var mikil spenna undir lokin. 

Óliver var með einnar holu forskot þegar tvær holur voru eftir. Þeir fóru báðar þær holur á pari og því stóð sá íslenski uppi sem sigurvegari.

Í gær vann hann nýkrýndan Evrópumeistara unglinga, Tao Pemerika, í bráðabana.

Um er að ræða mót sem þeir Matthew Fitzpatrick, Sergio Garcia og Jose Maria Olazabal unnu allir á þeirra upphafsárum í sportinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×