Nýtt mat AGS á upptöku evru fyrir Ísland Dagur B. Eggertsson skrifar 13. ágúst 2026 09:30 Það hefur verið undarleg þögn um nýtt mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á því hvað það myndi þýða fyrir Ísland að taka upp evru. Með nýjustu landsskýrslu sjóðsins um Ísland fylgir sérstök greining á kostum og göllum þess að Ísland skipti krónunni út fyrir evru í kjölfar mögulegrar aðildar að Evrópusambandinu. AGS tekur ekki afstöðu til þess hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Það er pólitísk ákvörðun sem Íslendingar taka sjálfir. En sjóðurinn leggur mat á efnahagsleg áhrif evrunnar. Og það mat er býsna skýrt. Lægri vextir og verðbólga Byrjum á því sem skiptir heimili og fyrirtæki mestu máli. AGS segir að afnám gengisáhættu milli krónu og evru og lægri vextir séu „clear advantages of euro-area membership“ — skýrir kostir aðildar að evrusvæðinu. Sjóðurinn segir jafnframt að evran gæti veitt Íslandi sterkara verðbólguakkeri og stuðlað að því að íslenskir markaðsvextir færðist nær evrusvæðinu sem búa við miklu lægri vexti. Það er kannski ekki skrýtið. AGS bendir á að Seðlabanki Íslands hafi stöðugt verið með hærri stýrivexti en Evrópski Seðlabankinn síðustu tvo áratugi. Áhættuálag sem fylgir litlum og sveiflukenndum gjaldmiðli hyrfi. Íslensk heimili, fyrirtæki og hið opinbera ættu að njóta lægri fjármagnskostnaðar. Gauti B. Eggertsson hagfræðingur hefur dregið fram hvað vaxtamunur á milli Íslands og evru-landa er mikill þegar húsnæðislán eru annars vegar og hvað eignamyndun er mikið hægari þegar greitt er af lánunum hér. Er Ísland of lítið fyrir evruna? Nei. Ísland er ekki of lítið fyrir evruna. AGS kemst fremur að gagnstæðri niðurstöðu. Orðalag sjóðsins er:„Small economic size makes the euro’s stability attractive.“ Smæð íslenska hagkerfisins geri stöðugleika evrunnar aðlaðandi. Mjög lítil hagkerfi eigi almennt erfiðara með að reka sjálfstæða peningastefnu en stærri hagkerfi. Sama gildir um viðskipti. Ísland er eitt opnasta hagkerfi heims. Lang mest viðskipti eru við Evrópu. AGS segir því beinlínis að mikil viðskipti Íslands og djúp tengsl við Evrópu styrki rökin fyrir nánari tengingu við evruna. Það er í raun einföld hugsun. Við rekum einn minnsta gjaldmiðil heims en eigum stærsta hluta viðskipta okkar við eitt stærsta myntsvæði heims. Það hefur kostnað í för með sér. Stærri fjármálamarkaður og aðgangur að erlendum lánum AGS bendir einnig á að litlir og grunnir íslenskir skuldabréfa- og gjaldeyrismarkaðir auki kostnaðinn við að reka lítið myntsvæði. Evran myndi draga úr gengisáhættu og auðvelda íslenskum fyrirtækjum aðgang að miklu stærri evrópskum fjármagnsmarkaði. Fjármögnun nýsköpunar og innviða myndi sérstaklega njóta góðs af. Hún myndi einnig draga úr viðskipta- og gengiskostnaði íslensku lífeyrissjóðanna vegna stórra erlendra eigna þeirra. Það myndi hagnast lífeyrisþegum til framtíðar. Þá myndi þörfin fyrir hinn stóra gjaldeyrisforða Seðlabankans minnka. AGS talar þar beinlínis um minni „tryggingarkostnað“ af því að halda úti stórum forða. En hvað missum við? AGS dregur ekkert undan um það. Með evru myndum við ekki lengur ákveða eigin stýrivexti. Krónan gæti ekki lengur fallið eða sigið til að taka hluta af högginu þegar sérstök áföll dynja yfir íslenska hagkerfið. Þannig hefur verið hægt að bæta samkeppnisstöðu hagkerfisins með því að flytja byrðar af útflutningsfyrirtækjum og yfir á launafólk gegnum hærra vöruverð og verðbólgu, að ógleymdum þeim sem skulda í verðtryggðri krónu. Þess vegna segir AGS að evruaðild kalli á sterk ríkisfjármál, að vinnumarkaðurinn verði áfram sveigjanlegur og laun verði ákveðin í takt við framleiðni. Tekið er fram að þessi verkefni séu líka brýn þótt evran verði ekki tekin upp. En sjóðurinn bendir einnig á að Ísland sé vel statt til að taka þessa ákvörðun. Gjaldeyrisforði sé nægur og opinberar skuldir sjálfbærar. Ísland geti því metið evruna „from a position of strength“ — úr sterkri stöðu. Það er mikilvæg niðurstaða. Upptaka evru yrði gríðalegur velferðarábati Rökin hrannast upp. Greining AGS kallast á við og staðfestir fyrri skýrslur sem mæla með upptöku evru, þótt AGS taki ekki beina afstöðu í því efni. Lækkun verðbólgu og vaxta, hagur heimila, samkeppnisstaða fyrirtækja, og atvinnulífs og auknar fjárfestingar og utanríkisviðskipti myndu fylgja evrunni. Til viðbótar fylgir því gríðarlegur kostaður ríkis og sveitarfélaga því að halda úti krónunni. Fjölmörg rök leiða því til þeirrar niðurstöðu að upptaka evru sé mikið hagsmunamál fyrir íslenskt samfélag. Landsskýrsla Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um Ísland: https://sedlabanki.is/library/?itemid=af3cf309-9389-4ae4-ac52-cc93c55fc246 Höfundur er þingmaður Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar