Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar 12. ágúst 2026 14:02 Bestu rökin sem ég hef heyrt gegn því að fara í aðildarviðræður er að þær séu svo umfangsmiklar og dýrar. En Ísland hefur nefnilega áður farið í aðildarviðræður við ESB. Við þurfum því ekki að giska á hvað slíkt ferli kostar. Í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis árið 2012 kemur fram að kostnaður við umsóknarferlið árin 2009–2012 hafi verið áætlaður 400 milljónir króna. Þar segir jafnframt að sú áætlun hafi „sem slík staðist“, þótt kostnaðurinn hafi dreifst öðruvísi yfir tímabilið en gert hafði verið ráð fyrir. Heimild: Skýrsla utanríkisráðherra um aðildarviðræður Íslands við ESB, Alþingi 2012. 400 milljónir króna frá árinu 2009 eru um 828 milljónir á verðlagi dagsins í dag, eða um 688 milljónir ef miðað er við verðlag 2013. Það var sem sagt stærðargráðan á kostnaði íslenska ríkisins við ferlið. En þá vantar hinn helminginn af dæminu. Sem umsóknarríki fékk Ísland jafnframt aðgang að svokallaðri IPA-aðstoð Evrópusambandsins, Instrument for Pre-Accession Assistance. Í sömu skýrslu kemur fram að gert hafi verið ráð fyrir 30 milljónum evra til Íslands á landsáætlunum áranna 2011–2013. Það jafngilti á þeim tíma nálægt 5 milljörðum íslenskra króna. Heimild: Skýrsla utanríkisráðherra, Alþingi 2012. Tölur framkvæmdastjórnar ESB sýna fjárveitingar upp á 12 milljónir evra árið 2011, 12 milljónir árið 2012 og 5,81 milljón árið 2013, eða samtals tæpar 30 milljónir evra. Þegar Ísland setti viðræðurnar í bið árið 2013 var IPA-aðstoðin síðan látin fjara út. Heimild: European Commission – Iceland: Financial Assistance under IPA. Og þetta fé fór ekki einfaldlega í eitthvert óljóst „ESB-aðlögunarverkefni“. Meðal verkefna voru bætt þjóðhagsreikningagerð Hagstofunnar, matvælaöryggi, náttúrurannsóknir, starfsmenntun, atvinnu- og byggðaþróun og þýðingar. Auk þess fékk Hagstofan eina milljón evra til verkefna vegna manntals, landbúnaðartölfræði og framleiðslureikninga og Þýðingamiðstöðin aðra milljón evra vegna þýðinga á regluverki ESB. Heimild: Skýrsla utanríkisráðherra, Alþingi 2012. Stundum eru þessir styrkir kallaðir „aðlögunarstyrkir“. Það er ekki beinlínis rangt orð, en það getur gefið villandi mynd af því hvað felst í þeim. Orðið er stundum notað eins og umsóknarríki þurfi meðan á viðræðum stendur að taka upp lög og reglur ESB, þannig að þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu sé landið í raun þegar orðið aðlagað að sambandinu. Það er ekki það sem þessi gögn sýna. Hluti verkefnanna laut vissulega að undirbúningi mögulegrar aðildar, til dæmis að byggja upp stjórnsýslugetu til að nýta sjóði ESB ef af aðild yrði. En önnur verkefni voru einfaldlega uppbygging stjórnsýslu, tölfræði, þýðingar, menntun og rannsóknir. Sum verkefnanna tengdust meira að segja reglum sem Ísland hafði þegar innleitt vegna EES-samningsins. Heimild: Skýrsla utanríkisráðherra, Alþingi 2012. Þetta skiptir máli þegar fullyrt er að „við verðum búin að innleiða ESB áður en við fáum að kjósa“. Aðildarviðræður snúast um að finna út hvaða aðildarsamningur stendur Íslandi til boða. Aðildin sjálf verður ekki að veruleika fyrr en samningurinn hefur verið samþykktur samkvæmt íslenskum stjórnskipunarreglum. Og reynslan frá síðustu umsókn sýnir líka annað sem skiptir máli í umræðunni núna: það var hægt að hætta. Ísland setti aðildarviðræðurnar í bið árið 2013. Fjárhagsaðstoðin var síðan stöðvuð í kjölfarið. Það reyndist því enginn sérstakur „point of no return“ í umsóknarferlinu eins og Carl Baudenbacher heldur fram í grein sinni á Vísi. Þess vegna standa rökin um að segja eigi nei við aðildarviðræðum vegna þess að þær séu svo dýrar frekar illa þegar þau eru borin saman við það sem gerðist síðast. Við vitum nokkurn veginn hvað ferlið kostaði. Við vitum líka hvað kom á móti. Og miðað við þá reynslu virðist kostnaður umsóknarinnar frekar vera rök með því að láta reyna á viðræðurnar en gegn því. Höfundur er fyrrverandi þingmaður og núverandi nörd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Björn Leví Gunnarsson Mest lesið Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Um þöggun Hörður Torfason skrifar Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon skrifar Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar
Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar
Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun