EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 12. ágúst 2026 13:00 Hvernig getum við styrkt samkeppnisstöðu Íslands? Við eigum fiskinn og hreinu orkuna. Við eigum þekkinguna, tæknina og hugvitið. En höfum við skapað bestu mögulegu skilyrðin til að fullvinna meira á Íslandi og skapa störfin hér heima? Þetta er spurning sem mér finnst vanta í umræðuna um EES og hugsanlega aðild Íslands að ESB. EES-samningurinn hefur reynst Íslandi vel. En Ísland er ekki í tollabandalagi ESB. Sjávarútvegur og landbúnaður njóta heldur ekki að öllu leyti sama frjálsa vöruflæðis og almennar iðnaðarvörur á EES-svæðinu. Um ýmsar afurðir gilda því tollar, tollkvótar, upprunareglur og sérstök viðskiptakjör. Hvað kostar það Ísland í fjárfestingum, verðmætasköpun og störfum? Hvar verður næsta fyrirtæki byggt? Setjum okkur í spor fyrirtækis sem ætlar að fjárfesta milljarða í fullvinnslu sjávarafurða. Fjárfestingin á að standa í 20, 30 eða jafnvel 50 ár. Stjórnendur fyrirtækisins spyrja: Hvar er öruggast að fjárfesta? Hvar er greiðastur aðgangur að stærsta markaðnum? Hvar er minnst óvissa um framtíðartolla og viðskiptakjör? Hvar er fjármögnunin hagstæðust? Hvar er gengisáhættan minnst? Og að lokum: Á verksmiðjan að rísa á Íslandi eða innan ESB? Þetta eru ekki fræðilegar spurningar. Svörin ráða því hvar fjárfestingin fer fram og hvar störfin verða til. Við núverandi stöðu er því rétt að spyrja: Flytjum við störfin út með hráefninu? Íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð. En framtíðin felst ekki aðeins í því að veiða fisk og flytja hann úr landi óunninn. Hvernig fáum við sem mest verðmæti úr hverju kílói sem við veiðum? Meiri fullvinnsla hér heima getur skapað störf langt út fyrir hefðbundna fiskvinnslu. Störf í matvælatækni, líftækni, sjálfvirkni, rannsóknum, vöruþróun, hönnun, markaðssetningu og sölu. Þetta eru verðmæt störf sem geta gefið ungu og vel menntuðu fólki fleiri ástæður til að byggja framtíð sína á Íslandi. Eigum við ekki að stefna að því að flytja út meiri verðmæti en FÆRRI störf? Öll óvissan í tollum og aðgang að markaði veikir samkeppnisstöðuna Við getum reiknað tollprósentu. En mun erfiðara er að reikna kostnaðinn af óvissunni. Fyrirtæki sem fjárfestir til ársins 2050 eða 2060 vill vita hvaða markaðsaðgang það hefur til framtíðar. Ef óvissa ríkir um tolla, kvóta eða önnur viðskiptakjör hefur það áhrif á hvar fjárfest er. Þess vegna ættum við ekki aðeins að spyrja hvað tollarnir kosta í dag, heldur: Af hvað mörgum fjárfestingum missir Ísland núna? Hversu mikil fullvinnsla varð og verður til annars staðar? Hversu mörg verðmæt störf urðu aldrei til á Íslandi? Þau störf birtast ekki í atvinnuleysistölum. En þau eru engu að síður hluti af fórnarkostnaði núverandi samkeppnisstöðu. Getum við snúið þessu við? Ég vil sjá Ísland keppa á jafnari grundvelli um fjárfestingar, fyrirtæki, rannsóknir og störf. Við eigum hráefnið hreinu orkuna. Við höfum menntað fólk og hugvitið. Af hverju ættum við þá ekki að stefna að því að skapa meiri verðmæti á Íslandi? Þess vegna eigum við að kanna hvort samningur við ESB geti tryggt Íslandi betri og varanlegri markaðsaðgang, minni viðskiptahindranir og meiri fyrirsjáanleika. Um leið þurfum við að skoða stóru myndina: Getur breytt efnahagsumhverfi til framtíðar gefið íslenskum fyrirtækjum stöðugri gjaldmiðil, lægri fjármagnskostnað og betri samkeppnisstöðu? Við þurfum að sjá samninginn til að bera saman núverandi stöðu EES og nýja stöðu með ESB. Stóra spurningin snýst ekki um síðustu 30 ár. Hún snýst um næstu 30 árin. Getum við skapað betri samkeppnisstöðu? Getum við fullunnið meira úr eigin auðlindum? Getum við laðað fleiri fjárfestingar til landsins? Getum við skapað fjölbreyttari og verðmætari störf fyrir unga fólkið? Getum við haldið meiri verðmætasköpun heima á Íslandi? Hvað missum við mörg störf vegna tollanna, óvissunnar og núverandi samkeppnisstöðu? Það væri gott að fá svar við því áður en við lokum dyrunum. Sjáum samninginn. Síðan veljum við. Höfundur er viðskiptafræðingur og MS í stjórnun og stefnumótun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar