Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar 10. ágúst 2026 15:02 Það er auðvelt að tala um mannréttindi þegar ekkert reynir á þau. Hið raunverulega próf hefst þegar réttindin kosta eitthvað eða kalla á breytingar utan þægindarammans. Mannréttindi fatlaðs fólks eru ekki réttindi sem stjórnmálamenn veita, ráðuneyti úthluta eða stofnanir eiga. Þau eru eign fólksins sjálfs. Um leið og við samþykkjum þá hugsun að stjórnvöld gefi okkur mannréttindi, samþykkjum við líka að þau geti tekið þau aftur. Réttindagæsla fatlaðs fólks er sláandi dæmi um þetta. Í áraraðir gat fatlað fólk og aðstandendur þess leitað beint til réttindagæslunnar þegar réttindi voru ekki virt. Þar fékk fólk ekki aðeins ráðleggingar heldur aðstoð við að sækja rétt sinn. Þessi nálægð skapaði jafnframt mikilvæga þekkingu á kerfisbundnu misrétti og því hvernig réttindi, sem voru skýr á pappír, brugðust í daglegu lífi fólks. Þetta var réttindavernd sem fólk lærði að treysta og taldi sig geta gengið að. Síðan breyttu stjórnvöld fyrirkomulaginu. Verkefnin færðust til Mannréttindastofnunar, sem veitir ráðgjöf en rekur ekki mál í umboði einstaklinga. Nú heyrum við frásagnir af því að það sem fyrir margt löngu gat tekið eitt símtal og nokkrar mínútur taki jafnvel mánuði, þegar best lætur. Þarna liggur kjarninn. Réttindin sjálf kunna að standa óbreytt í lögum, en möguleiki fólks til að sækja þau hefur breyst. Mannréttindi sem fólk taldi sig geta gengið að reyndust að hluta byggð á fyrirkomulagi sem stjórnvöld gátu breytt. (og þar með tekið frá fólki þá virkni sem réttindunum hafði verið gefin). Það er einmitt ástæða þess að mannréttindi mega aldrei verða háð velvilja valdsins. Réttindagæsla á heldur ekki endilega að vera þægileg fyrir stjórnvöld, eðli málsins samkvæmt. Hún á að benda á kerfisbresti, spyrja óþægilegra spurninga og standa með einstaklingnum þegar valdajafnvægið er honum í óhag. Safna þekkingu svo hægt sé að berja í brestina og bæta lífsgæði fólks. Þetta er ekki veikleiki hennar heldur tilgangur. Þess vegna eigum við að meta allar breytingar á réttindavernd út frá stöðu fólksins sjálfs. Er auðveldara eða erfiðara að leita réttar síns? Er leiðin að aðstoð styttri eða lengri? Er rödd einstaklingsins sterkari eða veikari gagnvart kerfinu? Þetta skiptir mestu fyrir þá sem eiga erfiðast með að rata um stjórnsýsluna, þekkja rétt sinn eða koma vilja sínum á framfæri. Sá sem stendur veikast gagnvart kerfinu á ekki jafnframt að þurfa að vera sterkastur til þess að sækja rétt sinn. Fatlað fólk er ekki viðfangsefni kerfisins heldur fólk með sjálfstæð réttindi, vilja og rétt til að stjórna eigin lífi. Kannski er kjarni alls þessa einfaldlega rétturinn til að fá að vera manneskja en ekki mál í kerfi. Mannréttindasamfélag verður ekki til vegna þess að orðið mannréttindi stendur á skilti stofnunar. Það verður til þegar sá sem minnst vald hefur getur gengið að réttindum sínum vísum, líka þegar þau eru valdinu óþægileg. Mannréttindi eru ekki gjöf valdsins til fólksins, þau eru eign fólksins og mörk valdsins. Höfundur er stjórnsýslufræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar