Innlent

Ný skýrsla AGS og um­merki um snjó­flóð á hafs­botni

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar hefjast klukkan 12:00.
Hádegisfréttir Bylgjunnar hefjast klukkan 12:00. vísir

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væntir þess að ekki takist að skila afgangi af rekstri ríkissjóðs fyrr en árið 2031 þrátt fyrir áform ríkisstjórnarinnar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir inntak skýrslunnar ekki koma á óvart og kallar eftir dýpri umræðu um fjárlögin.

Stefán Már Stefánsson, prófessor emerítus við lagadeild Háskóla Íslands, fullyrðir að gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt.

Sjö tilkynningar bárust lögreglu um líkamsárásir í gær og í nótt. Nokkrir voru fluttir á slysadeild.

Níu skipsflök fundust við könnun á hafsvæði við Siglufjörð auk ummerkja um snjóflóð sem féll á svæðinu árið 1919. Fornleifafræðingur sem kannaði svæðið segir varðveislu neðansjávar mun betri en menn hafi ímyndað sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×