Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Freyja Þórisdóttir skrifar 9. ágúst 2026 08:27 Saksóknari í Bordeaux sagði við franska miðilinn Le Monde að hörð nálgun væri réttlætanleg miðað við núverandi aðstæður og forseti Frakklands, Emmanuel Macron, hefur biðlað til fólks að standa saman og treysta ríkisstjórninni. AP Enn hefur ekki tekist að svara því hvernig skógareldar í Frakklandi sem geisuðu í sumar hófust. Margir vilja meina að eldarnir séu birtingarmynd loftslagsbreytinga en þar sem níu af hverjum tíu skógareldum sem hafa komið upp í Frakklandi eru af mannavöldum leita yfirvöld nú logandi ljósi að sökudólgi. Þarlend ríkisstjórn hefur þó sjálf verið sökuð um að hafa verið illa undirbúin fyrir eldsvoðana og gripið seint inn í.
Evrópusambandið hefur sagt þær rýmingaraðgerðir sem ráðist var í þegar á fjórða hundrað þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni í júlí vera einar þær umfangsmestu sem ráðist hefur verið í í álfunni. Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir einnig frá því í umfjöllun sinni að eldarnir hafi valdið meiri skemmdum og skaða í Frakklandi á þessu ári en nokkurn tímann frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Fjöldi fólks dæmdur í fangelsi Hitabylgja sem reið yfir álfuna hafi án efa spilað inn í en ríkisstjórn Frakklands virðist staðráðin í því að dæma fólk fyrir að hafa valdið eldunum. BBC greinir frá því að innanríkisráðuneytið hafi þegar tilkynnt um fjögurhundruð og tuttugu handtökur á fólki sem er sakað um að hafa kveikt eldana, annaðhvort af ásetningi eða óviljandi. Þar á meðal eru hundrað sextíu og sex undir lögaldri. Í einu tilviki sé 23 ára gamall maður sakaður um að hafa vísvitandi kveikt tíu elda á fimm dögum á í suðausturhluta landsins en hann á yfir höfði sér 15 ára fangelsi og gríðarlega háa sekt ef hann verður sakfelldur. Virðist óhóflegt Mörg önnur mál hafa verið tekin fyrir og dómur fallið strax, eins og í tilfelli manns sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm fyrir að kveikja þrjá elda nýlega í Raon-L'Étape-skóginum á Vosges-svæðinu. „Aðeins nokkrir fermetrar af gróðri urðu að reyk,“ sagði í frétt dagblaðsins L'Est Républicain um málið. Þá hafa heimilislaus maður og einstaklingur með alvarlega einhverfu verið dæmdir í fangelsi fyrir að henda frá sér sígarettustubbum, er fram kemur í umfjöllun BBC. „Ég var undrandi á fjölda handtaka, þetta virðist óhóflegt,“ er haft eftir Muriel Gestas, lögmanni sem hafi verið málsvari nokkurra sem sakaðir eru um íkveikju, þar á meðal tveggja slökkviliðsmanna. Hún er sögð efast um að mörg málanna muni leiða til sakfellingar. Þjóðin verði að standa saman Saksóknari í Bordeaux, Renaud Gaudeul, sagði við franska miðillinn Le Monde að hörð nálgun væri réttlætanleg miðað við núverandi aðstæður. „Skilyrði fyrir ákæru um að stofna lífi í hættu eru uppfyllt fyrir þá sem henda sígarettustubbi eða kveikja upp í grilli á skógi vöxnum svæðum. Það þarf aðeins örlítinn neista til að kvikni í,“ hefur blaðið eftir honum. Emmanuel Macron forseti Frakklands hafi sagt að gagnrýni eigi ekki að vera í fyrirrúmi á stundu sem þessari. „Við verðum að endurgróðursetja og endurbyggja skóg því við verðum að aðlagast því sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér,“ er haft eftir honum þegar hann tjáði sig um málið í vikunni. „Á meðan verður þjóðin að standa saman.“
Frakkland Gróðureldar Skógrækt og landgræðsla Spánn Dómsmál Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira