Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 14:58 Verslanirnar Barnaloppan og Góði hirðirinneru nýrverið orðnar nágrannar. Samsett Eigendur básaleigunnar Barnaloppan biðla til leigjenda sinna að fara ekki gagngert í Góða hirðinn og selja vörurnar síðan í básaleigunni.
Eigendur Barnaloppunnar, sem leigir út bása þar sem hægt er að selja notuð barnaföt, biðla til leigjenda sinna í færslu á Facebook. Þar segir: „Það væri yndislegt ef hægt væri að stunda svoleiðis viðskipti annars staðar heldur en hér hjá okkur. Það á að vera hægt að gera góð kaup bæði í Góða hirðinum og í Barnaloppunni.“ Guðríður Gunnlaugsdóttir, ein eigenda Barnaloppunnar, segir þau í rekstrarteyminu verða vör við einstaka leigjendur sem stundi slík viðskipti. „Auðvitað er fólk bara að reyna að redda sér en okkur er illa við þetta. Við viljum helst ekki að það sé verið að gera þetta hjá okkur. Það er hægt bara að selja þetta á netinu eða eitthvað ef fólk vill vera í þessu,“ segir Guðríður. Verði vör við fólk „moka í körfurnar“ Barnaloppan flutti einmitt á dögunum í nýtt húsnæði, í gömlu kassagerðina á Köllunarklettsvegi í Reykjavík. „Við erum bara við hliðina á Góða hirðinum í sama húsnæði og það er svo gaman að fólk geti tekið bara svona góðan „thrift“ dag,“ segir Guðríður. Vandamálið sé ekki nýtt en sé mun augljósara eftir flutningana, þegar verslanirnar tvær eru við hliðina á hvor annarri. „Maður sér þau moka í körfurnar og þetta er orðið svona nokkuð augljóst á sumum básum.“ Viðskiptavinir hafi tekið eftir umræddum básum og jafnvel sniðgangi umrædda bása. „Ég hef talað við nokkra kaupendur og það flestir farnir að sniðganga þetta út af því að verðið er oft bara of hátt. Það á náttúrulega að vera hægt að kaupa ódýrt hjá okkur.“ „Bíddu, er þetta verðmiðinn?“ Stundum gleymist jafnvel að taka verðmiðana frá Góða hirðinum af vörunum sem eru til sölu í Barnaloppunni. Kaupendur séu eðlilega ekki sáttir við það þegar verðmiðinn er hærri en sá gamli. „Það lítur enn verr út þegar fólk kemur til okkar á kassann og ætlar að kaupa eitthvað og er bara: bíddu, er þetta verðmiðinn? Þegar kaupendur eru farnir að pirra sig þá þarf maður auðvitað að fara að kanna málið.“ Erfitt sé að hafa stjórn á athæfinu en þetta séu þó einstaka leigjendur og eigendur gruni að yfirleitt sé um þá sömu að ræða. Oftast séu þetta þeir sem leigi bása í lengri tíma og eigendur hafi leitt hugann að því að hægt væri að stoppa þetta með því að banna langtímaleigu. „Það er mjög erfitt að hafa „kontról“ á þessu en við viljum reyna að minnka þetta hjá okkur, sérstaklega núna. Ég meina, við erum hérna við hliðina á þeim.“ Annars segir hún flutningana hafa gengið vel. „Það var pínu stress en þetta reddaðist eins og það gerir alltaf á endanum. Við tróðum bara smá í geymslurnar en allt var orðið voða fínt þegar við opnuðum fyrir fólki. Við erum alveg ótrúlega þakklát fyrir frábærar móttökur á nýja staðnum Það eru allir ótrúlega ánæðir með þetta og við líka.“
Börn og uppeldi Mest lesið Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Beint streymi frá Gleðigöngunni Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Fleiri fréttir Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Sjá meira