Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar 8. ágúst 2026 08:00 Með örfáum undantekningum hef ég tekið þátt í Gleðigöngunni á Íslandi frá upphafi. Alltaf jafn gaman, alltaf jafn sérstakt. Og hvert skipti hefur gefið tilefni til að rifja upp þá vegferð sem hefur tryggt forystu Íslands þegar kemur að réttindum hinsegin fólks. Ísland er í þriðja sæti á Regnbogakorti ILGA-Europe sem sýnir stöðu og réttindi hinsegin fólks og í fyrsta sæti á réttindakorti TGEU (Trans Europe and Central Asia). Þá trónir Ísland efst á Spartacus Gay Travel Index yfir góða áfangastaði fyrir hinsegin ferðalanga. Þessa góðu stöðu má rekja til þrotlausrar vinnu fjölda fólks innan og utan hinsegin samfélagsins. Sú vinna hefur verið mörgum dýrkeypt og kallað á erfiðar persónulegar fórnir fólks sem staðið hefur í forgrunni réttindabaráttunnar. Að sama skapi er ástæða til að gleðjast yfir því að almennt hafa þessar réttarbætur loks náð fram að ganga með fullum stuðningi íslensks samfélags. Íslensk stjórnvöld munu áfram standa vörð um mannréttindi hinsegin fólks og halda áfram lagabótum, ekki aðeins til að halda góðri stöðu heldur til að leggja sitt af mörkum til enn betri heims. Íslenskt samfélag hefur ekki farið varhluta af þeirri neikvæðu bylgju sem merkja má víðs vegar um heim í málefnum hinsegin fólks. Minni spámenn hafa uppgötvað að það er vís leið til stundarfrægðar að hafa uppi meiðandi umræðu um hinsegin fólk, gjarnan dulbúna sem almennar áhyggjur af velferð samfélagsins. Réttindi hinsegin fólks hafa þannig orðið pólitískur gjaldmiðill í höndum popúlískra stjórnmálamanna. Baráttan gegn frelsi og réttindum hinsegin fólks – og um þessar mundir sérstaklega trans fólks - er nátengd uppgangi ýmiskonar skipulagðra öfgahreyfinga í heiminum sem ógna sjálfum grundvallargildum lýðræðisins: frelsi, jafnrétti og mannréttindum. Við getum ekki lokað augunum fyrir áhrifum þess. Við höfum sannarlega orðið vör við aukna neikvæða orðræðu, við höfum orðið vitni að skemmdarverkum á regnbogafánanum og hótunum um ofbeldisverk. En það er einmitt þegar skuggarnir hóta því að taka yfir sem gleðin og birtan er allra mikilvægust. Ég hlakka til þess að ganga í dag og gleðjast með hinsegin fjölskyldunni minni sem og öllum þeim fjölda fólks sem fagnar stöðu okkar sem opnu, frjálslyndu og vel upplýstu samfélagi. Gleðilega hátíð. Höfundur er atvinnuvegaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hanna Katrín Friðriksson Hinsegin Gleðigangan Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar