Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Tómas Arnar Þorláksson og Sigurgeir Þorkelsson skrifa 5. ágúst 2026 18:44 Fréttastofu er ekki kunnugt um hvar í Kópavogi andlátið átti sér stað. Vísir/Vilhelm Rannsókn lögreglu vegna andláts í Kópavogi í liðinni viku miðar vel að sögn E. Agnesar Eide, yfirlögregluþjóns rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem verst allra fregna. Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna málsins.
Hinn látni var á sjötugsaldri en samkvæmt heimildum fréttastofu tengjast mennirnir fjölskylduböndum og eru báðir Íslendingar. Maðurinn var handtekinn í síðustu viku, um tveimur til fjórum dögum eftir að andlátið átti sér stað. Vikulangt gæsluvarðhald yfir honum rann út í dag en það hefur nú verið framlengt um fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna. Málið þykir óvenjulegt þar sem ekki fréttist af því fyrr en rúmri viku eftir andlátið. Ljóst er að um viðkvæmt mál sé að ræða en lögregla heldur spilunum þétt að sér. Tómas Arnar Þorláksson hefur fylgt málinu eftir í dag. Í samtali Elísabetar Ingu Sigurðardóttur við hann í kvöldfréttum kom fram að sumir þeirra lögreglumanna sem Tómas ræddi við í dag hefðu einnig fyrst verið að frétta málinu í dag þegar það komst í fréttir. „Það er ljóst að málið hefur nánast alfarið verið á borði miðlægrar deildar lögreglunnar sem rannsakar nú málið,“ segir Tómas. „Við vitum að andlátið átti sér stað um helgi fyrir tíu eða ellefu dögum og við vitum að maður var handtekinn tveimur til fjórum dögum síðar í tengslum við málið en það kemur til dæmis ekki fram í tilkynningu lögreglu hvort sá maður hafi stöðu sakbornings í málinu eða hvort um rannsókn á manndrápi sé að ræða.” Þá hefur fréttastofa enn engar upplýsingar um hvernig andlátið bar að, svo og hvar í Kópavogi atburðurinn átti sér stað eða hvort maðurinn sem nú sætir gæsluvarðhaldi eigi sér fyrri brotasögu. Í gæsluvarðhaldsúrskurði kemur þó fram að maðurinn sé áfram vistaður vegna almannahagsmuna. „Já, það er nokkuð áhugavert og eitthvað sem vakti strax athygli mína. Við vitum það að maðurinn var handtekinn í síðustu viku, annaðhvort á þriðjudeginum 28. júlí eða miðvikudaginn 29. júlí, og upphaflega úrskurðaður í viku langt varðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.“ Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.
Kópavogur Lögreglumál Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Fleiri fréttir Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Sjá meira