Sport

Æfir blindandi og skýtur á eig­andann

Valur Páll Eiríksson skrifar
CeeDee Lamb vakti athygli með net á hausnum á æfingu.
CeeDee Lamb vakti athygli með net á hausnum á æfingu. Jayne Kamin-Oncea/Getty Images

Einstök ný æfingaaðferð útherjans Ceedee Lamb, sem leikur fyrir Dallas Cowboys í NFL-deildinni, hefur vakið athygli. Hann segist þurfa að geta gripið boltann blindandi.

Margur velti fyrir sér hvað lægi fyrir Lamb þegar myndskeið birtist af honum æfandi með þykkt flugnanet yfir hausnum. Hvort hræðsla við flugnabit eða annað slíkt olli áhugaverðri aðferð.

Yahoo greinir frá því að ástæðan sé eiganda Cowboys-liðsins, Jerry Jones, ekki endilega að skapi.

„Ég verð að æfa mig í að grípa boltann án þess að sjá hann. Eigandinn minn neitar að laga vandamálið með sólarljósið sem kemur inn á völlinn, svo ég verð að aðlagast,“ er haft eftir Lamb.

Þar er vísað til atviks þar sem Lamb mistókst að grípa stutta þriggja stiku langa sendingu í endamarkinu í leik við Philadelphia Eagles vegna sólarljóss sem truflaði sýn hans á heimavelli Cowboys, AT&T-vellinum í Dallas.

Jerry Jones, eigandi Dallas Cowboys, er skrautlegur fír. Hann tók ummælum Lamb af léttúð árið 2024.Getty/Tom Pennington

Lamb hefur áður nefnt sólarljós á vellinum sem hafi truflandi áhrif við ákveðnar birtuaðstæður. Jones vísaði gagnrýni útherjans til föðurhúsanna á sínum tíma, árið 2024.

„Við vitum hvar fjárans sólin verður á okkar eigin leikvangi. Jæja, við skulum bara rífa þennan bölvaða leikvang og byggja annan? Ertu að grínast í mér?“ sagði Jones og bætti við:

„Sömu aðstæður eiga við um alla. Öll lið sem koma hingað eru með sömu vandamálin. Þau vita hvar sólin verður. Öll lið glíma við það sama.“

Lamb hefur verið meðal öflugri útherja deildarinnar undanfarin ár en öll lið í NFL-deildinni eru komin á fullt í undirbúningi sínum fyrir komandi tímabil sem hefst eftir um mánuð.

NFL-deildinni verður að venju fylgt eftir með beinum útsendingum sem og í vikulegum þætti af Lokasókninni í allan vetur á Sýn Sport.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×