Sport

Dag­skráin í dag: Ó­trú­leg augna­blik í NFL-deildinni krufin

Andri Broddason skrifar
Lokasóknin ætlar að fara yfir allt sem gerðist í annarri umferð NFL-deildarinnar.
Lokasóknin ætlar að fara yfir allt sem gerðist í annarri umferð NFL-deildarinnar. Quinn Rooney/Getty Images

Sportrásir Sýnar eru enn í rólegri kantinum eftir langa helgi þar sem landsleikjahlé í fótbolta er gengið í garð.

Lokasóknin verður á dagskrá þar sem farið verður yfir allt það helsta sem gerðist í NFL-deildinni um helgina. Þátturinn er sýndur á Sýn Sport klukkan 20:00.

Önnur umferð NFL-deildarinnar klárast í nótt þegar lokaleikur umferðarinnar verður spilaður þar sem Los Angeles Rams mæta New York Giants. Þrátt fyrir að tímabilið í NFL sé bara nýfarið af stað er nóg af hlutum til að gerast og munu sérfræðingar Sýn Sport fjalla um allt það helsta sem hefur gerst hingað til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×