Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 14:07 Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur í glerinu Gulli Helga Bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar segir útsýnispall á Bolafjalli alveg öruggan þrátt fyrir að sprungur séu í glerveggjum þess. Til stendur að bæta veginn upp fjallið en alvarlegt slys varð þar fyrir um viku. „
Bolungarvíkurkaupstaður tók við veghaldi upp á Bolafjall núna í mars og var í framhaldinu unnin verkáætlun sem gerir ráð fyrir að bæta öryggi upp á Bolafjall og halda veginum við og það er það sem við munum gera,“ segir Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, nýr bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar. Hún var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Til stendur að breikka veginn en núna er verið að hefla hann og bæta við útskotum. Vegrið verður sett upp á næsta ári. „Honum er vel haldið við og þetta er náttúrulega malarvegur. Þarna þarf að keyra miðað við aðstæður en vegurinn sjálfur er ekki hættulegur ef maður keyrir með gát.“ Umferðarslys varð á veginum fyrir um viku þegar bíll valt niður og rúllaði í marga hringi niður fjallshlíðina. Kona sem var undir stýri slapp með minni háttar áverka en talið er að bíllinn hafi oltið tvö til þrjú hundruð metra. „Vegurinn hefur verið þarna síðan 1985 skilst mér. Það hafa ekki orðið nein stórslys á veginum að mér vitandi. Slysið sem varð á fjallinu um daginn má náttúrulega rekja til glæfraaksturs,“ segir Jóhanna. Sprungurnar ekki af manngerðu álagi Umferð um veginn hefur aukist töluvert en Jóhanna telur að það sem af er sumri hafi tíu þúsund manns farið um veginn, bæði á einkabílum og í smárútum. Það hefur vakið athygli þeirra sem ferðast upp á fjallið að nokkrar glerplötur á pallinum virðast hafa sprungið. Utanríkisráðherrar Norðurlanda fóru upp fjallið í júní 2023. Hér má sjá brotna glerið við enda pallsins. Fleiri plötur eru brotnar núna.Utanríkisráðuneytið „Þetta er fyrst og fremst ljótt. Þetta er ekki eitthvað sem fólk á að hræðast því að þarna eru tvö öryggisgler. Sprungurnar eru í glerinu sem snýr inn að pallinum og pallurinn er byggður samkvæmt ströngustu öryggiskröfum. Hann er gerður til að þola mjög mikinn þunga en líka mjög mikið veðurálag,“ segir Jóhanna. Sprungurnar komi ekki af manngerðu álagi heldur þar sem gríðarmikill snjór safnist þar saman á veturna. Nú þegar er búið að panta gler en þar sem festingar þess eru utan á pallinum er hægara sagt en gert að skipta um gler. „Þannig að það er ekki hlaupið að því að skipta um það en það verður skipt um það og það var stefnan að gera það núna fyrir almyrkvann.“ Búist er við að töluverður fjöldi verði á Vestfjörðum yfir almyrkvann og verður veginum um Bolafjall lokað á meðan. Þess í stað verður hægt að panta ferð með rútu upp á fjallið fyrir almyrkvann. „Það er bara af öryggissjónarmiðum af því við vitum ekki alveg hvað við eigum von á stórum hópi.“
Bolungarvík Almyrkvi 12. ágúst 2026 Bítið Útsýnispallur á Bolafjalli Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira