Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar 30. júlí 2026 16:03 Nýleg ákvörðun Vinnslustöðvarinnar um að skipta makrílkvóta sínum fyrir þorskkvóta vekur upp alvarlegar spurningar um stöðu þeirra sjómanna sem starfa á uppsjávarskipum fyrirtækisins. Fyrir þá sem byggja afkomu sína á hlutaskiptakerfinu getur slík ákvörðun haft veruleg áhrif á tekjur þeirra, án þess að þeir hafi nokkuð um hana að segja. Þetta er ekki aðeins spurning um eina kvótatilfærslu. Hér vaknar grundvallarspurning um hvort núverandi fyrirkomulag sé réttlátt. Á útgerð að geta tekið ákvarðanir sem hafa bein áhrif á laun og afkomu sjómanna með þessum hætti? Hvar liggja mörkin á milli eðlilegra rekstrarákvarðana og ábyrgðar gagnvart því fólki sem skapar verðmætin? Á sama tíma hafa komið fram upplýsingar um að Vinnslustöðin hafi fjárfest í saltfiskvinnslu í Portúgal. Ef markmiðið með þessum breytingum er að færa meira hráefni til vinnslu erlendis blasir við önnur alvarleg spurning: Hvað þýðir það fyrir íslenskt verkafólk? Hvert tonn sem unnin eru utan Íslands geta þýtt minni verkefni, færri störf og lakari atvinnuöryggi hér heima. Einnig þarf að benda á það, að Vinnslustöðin er sú útgerð sem virðist borga sjómönnum lægst fyrir hráefnið sem þeir veiða, nýlegar loðnu- og kolmunnavertíðir sína þetta svart á hvítu. Undirritaður hefur launaseðla undir höndunum frá færeyskum sjómönnum sem staðfesta það að færeyskar útgerðir borga töluvert meira til sinna sjómanna en íslenskar útgerðir - útgerðarmenn hafa sagt að þetta sé einungis ýktar bryggjusögur en launaseðlar sjómanna ljúga varla. Íslensk sjávarútvegur hefur byggst upp á því að auðlindin skapi verðmæti fyrir allt samfélagið. Það felur ekki aðeins í sér arð fyrir eigendur fyrirtækja heldur einnig góð störf, öflug byggðarlög og sanngjarna hlutdeild þeirra sem vinna á sjó og í landi. Þegar sömu aðilar gagnrýna auðlindagjöld harðlega á sama tíma og ákvarðanir eru teknar sem geta dregið úr tekjum sjómanna og fært störf úr landi, er eðlilegt að almenningur spyrji hvort samfélagsleg ábyrgð sé höfð að leiðarljósi. Þetta snýst ekki um að vera á móti arðsemi fyrirtækja. Öflug fyrirtæki eru mikilvæg. En þau bera líka ábyrgð gagnvart starfsfólki sínu og samfélaginu sem treyst hefur þeim fyrir einni verðmætustu sameiginlegu auðlind þjóðarinnar. Þess vegna er kominn tími til að ræða af fullri alvöru hvort núverandi fyrirkomulag hlutaskiptakerfisins og ráðstöfunar aflaheimilda tryggi nægilega hagsmuni sjómanna og íslensks verkafólks. Auðlindin er sameign þjóðarinnar. Hún á að skapa verðmæti fyrir samfélagið allt – ekki aðeins fyrir fáa. Er mönnum eins og Binna treystandi fyrir auðlindinni okkar allra? Höfundur er formaður VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar