Viðskipti erlent

Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali

Samúel Karl Ólason skrifar
Víða um Mið-Austurlönd hefur þurft að draga úr framleiðslu á olíu og jarðgasi vegna stríðsins gegn Íran.
Víða um Mið-Austurlönd hefur þurft að draga úr framleiðslu á olíu og jarðgasi vegna stríðsins gegn Íran. AP/Leo Correa

Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu.

Þá segja Íranir að olíuflutningaskipi hafi verið siglt á tundurdufl í Hormússundi og eldur hafi kviknað um borð. Tveimur öðrum skipum mun þá hafa verið snúið við, samkvæmt ríkismiðlum í Íran.

Bandaríkjamenn hafa verið að flytja meiri herafla til Mið-Austurlanda og bendir það til þess að umfang árása þeirra á Íran gæti aukist á næstunni.

Sjá einnig: Skoða að auka um­fang á­rása enn frekar

Samhliða þessari þróun hefur verð Brent-hráolíu hækkað um rúm fjögur prósent í morgun, samkvæmt frétt New York Times, og fór yfir 98 dali á tunnu.

Verð tunnunnar hefur ekki verið hærra síðan í maí. Það hefur hefur hækkað um rúma þrettán dali á einni viku og um 33 prósent frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í febrúar.

Fréttaveitan SPA, sem er frá Sádi-Arabíu, segir að árás hafi verið gerð á skipið Encelia í gær. Eldur hafi kviknað um borð en áhöfnin hafi sloppið heil á húfi.

Þetta myndband sem fór í dreifingu í gær er sagt sýna eld um borð í Encelia.

Reuters sagði frá því í morgun að þrátt fyrir að Hútar segjast hafa gert árás á tvö flutningaskip í gær og að eldur hafi kviknað um borð í að minnsta kosti öðru þeirra, hafi tveimur kínverskum olíuflutningaskipum verið siglt í átt að Bab El Mandeb-sundi, sem er inngangurinn að Rauðahafi.

Þessi tvö skip bera saman rúmar fjórar milljónir tunna af olíu frá Sádi-Arabíu.

Verulega hefur dregið úr siglingum olíuflutningaskipa um bæði Hormússund og Rauðahaf. Mörg ríki heims hafa gengið verulega á olíu- og gasbirgðir sínar á undanförnum mánuðum og er staðan því talin nokkuð viðkvæmari en hún var í upphafi stríðsins.

Þá hafa umfangsmiklar árásir Úkraínumanna á olíu- og gasinnviði í Rússlandi dregið enn frekar úr framboði.

Fyrir stríðið fóru um 15 milljónir tunna af olíu gegnum Hormússund á degi hverjum. Ráðamenn við Persaflóa leita nú leiða til að flytja olíu um aðrar leiðir og komast hjá Írönum, sem hafa lýst yfir vilja til að stýra sundinu og umferð þar um í framtíðinni.

AP fréttaveitan segir að minnsta kosti sjö nýjar olíuleiðslur í smíðum eða skipulagningu. Gallinn er þó að flestar þeirra eiga að flytja olíu að Rauðahafi, þar sem Hútar hafa ítök og geta gert árásir.

Olíuleiðslur eru þar að auki viðkvæmar fyrir árásum með eldflaugum og sjálfsprengidrónum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×