„Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. júlí 2026 18:52 Arnar Jökull Agnarsson er ábyrgðarmaður þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair og var til viðtals í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Samsett Flugmenn hafa skyldu til þess að grípa inn í ef öryggi er í hættu en ákvörðunarvaldið er í höndum flugstjóra að sögn ábyrgðarmanns þjálfunar hjá Icelandair. Vald flugstjóra innan flugklefans sækir fyrirmynd úr siglingalögum en hefur tekið þó nokkrum breytingum á síðustu áratugum.
Tveir flugmenn voru sviptir flugréttindum tímabundið fyrir að hafa flogið flugvél Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjar þann 11. apríl síðastliðinn. Flugstjóri vélarinnar verður kærður til lögreglu fyrir atvikið staðfestir Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu í samtali við Vísi. Flugstjóri vélarinnar var að fljúga sitt síðasta flug með Icelandair þegar ákveðið var að fljúga kveðjulágflug yfir heimabyggðina í Eyjum. Flugmaðurinn sem flaug með honum var sviptur leyfi í ár og hefur ekki fengið að fljúga á meðan rannsókn málsins stendur. „Vald flugstjórans innan flugklefans er alveg klárt,“ segir Arnar Jökull Agnarsson, ábyrgðarmaður þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair, en hann var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Vald hans sæki fyrirmynd í stöðu skipstjóra úr siglingarlögum, sem hafi þróast töluvert í gegnum tíðina. Á 20. öld hafi lög um æðsta stjórnanda um borð verið yfirfærð á loftferðir en eigi við flugstjóra. Þau hafi verið gerð að alþjóðalögum með svokölluðum Tókýó-sáttmála á sjöunda áratug síðustu aldar. Síðan hafi lögin tekið nokkrum breytingum með aðkomu Flugöryggisstofnunar Evrópu. Þó nokkur breyting hafi orðið á fyrirkomulagi um borð á síðustu fjörutíu árum. „Þá var flugstjórinn svona „Guð um borð“ og menn jafnvel bara hræddust við að tala við hann um hans ákvarðanir.“ Stærsta breytingin hafi orðið í kjölfar eins stærsta flugslyss sögunnar, á Tenerife árið 1977, en þar lentu tvær breiðþotur saman en önnur þeirra fór í loftið án þess að fá flugtaksheimild. Þá hafi flugmaður haft einhverjar upplýsingar til þess að koma í veg fyrir slys en kom þeim ekki á markvissann hátt til flugstjórans. Sjálfstæð skylda flugmanns til að grípa inn í ef öryggi er í hættu hafi haft mikil áhrif á alþjóðalög en nýleg dæmi séu um að bæði flugstjóri og flugmaður séu gerðir ábyrgir. Ábyrgð flugmanns sé að benda á mögulegar hættur en lokaákvörðun sé flugstjórans Flugstjórinn hafi ákvörðunarvaldið innan flugklefans en ábyrgð flugmanns byggi á því að benda á hættur og tilkynna um óöruggar aðstæður. „Síðan hjálpar hann flugstjóra við að taka ákvörðun með öllum þeim upplýsingum sem hann hefur.“ „Flugstjórinn náttúrulega klárlega hefur lokavald en við erum öll mannleg og ástæðan fyrir því að það eru tveir frammi er akkúrat út af þessu.“ Þannig að flugmaður getur ekki tekið völdin af flugstjóranum? „Það væru orðnar svolítið skrítnar kringumstæður ef það kæmi upp. Það er mjög sjaldgæft að það komi upp, við erum með mjög fá dæmi þess að flugmaður grípi inn í, því það í rauninni eykur hættuna enn þá meira, en hans hlutverk er klárlega að segja frá þeim upplýsingum sem hann hefur og benda þá á óöruggar aðstæður.“ Þjálfun flugmanna snúist um að bregðast við óvæntum aðstæðum en samskipti milli áhafnarmeðlima séu gríðarlega stór hluti þjálfunarferlisins. Mikilvægt sé að meðlimir taki sameiginlega ákvörðun „miðað við þær mögulegu forsendur sem þeir hafa á hverjum tíma.“ „Eitt af því til dæmis að við þjálfum alltaf mjög vel er að þó að annar flugmaðurinn verði óstarfhæfur þá geti hinn tekið yfir og lent flugvélinni.“ Ár hvert sé farið yfir svokallað áhafnarsamstarf. Þar sé meðal annars farið yfir samskipti milli áhafnarmeðlima og ábyrgð flugstjórans og lögð sé áhersla á að koma upplýsingum áleiðis verði áhöfn vör við eitthvað óeðlilegt. „Þetta er sérstaklega mikilvægt til dæmis fyrir áhöfnina. Auðvitað þegar maður er að byrja í svona starfi, þá kemur maður þarna fram og skilur ekkert hvað er að gerast og hvað þeir gera. Þannig að eðlilega á fólk kannski erfitt með að grípa í símann og hringja og segja frá einhverju af því það heldur kannski að þeir viti þetta allt saman. Þetta er bara svona hluti af til dæmis þjálfunarferli sem við þurfum að þjálfa okkar fólk mjög vel í.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík síðdegis Bylgjan Flug Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Sjá meira