Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar 22. júlí 2026 14:00 Nýkominn heim úr hitasvækju á Ítalíu fann ég fyrir óvæntum létti þegar ég gat andað að mér íslenskum svala, tíu gráðum og fundið lárétta kalda regndropa í andlitinu. Það var beinlínis sælutilfinning. Ætti ég þess kost að velja á milli þess að vera regnbarinn á Íslandi eða sólþurrkaður á háhitasvæðum í Evrópu eða annars staðar væri valið auðvelt. Við hjónin höfum um árabil farið til Ítalíu að sumarlagi. Þær ferðir verða ekki fleiri. Hitabylgjur hafa gengið yfir stóran hluta Evrópu undanfarin sumur og hitinn víða farið upp undir eða yfir fjörutíu gráður. Ástandið er ekki lengur bundið við einstök hitamet eða óvenjuleg ár. Langvarandi sumarhiti er orðinn veruleiki sem hlýtur að kalla á breyttar ferðavenjur. Í áratugi höfum við Íslendingar sótt suður á bóginn til að komast í sól og hita. Við höfum flúið íslenska rokið, rigninguna og tíu stiga hitann og greitt stórfé fyrir alvöru sól og hlýindi. En hvað gerist þegar hitinn verður of mikill? Þegar það verður nánast áreynsla að draga andann hættir flest sem krefst hreyfingar eða útiveru að vera eftirsóknarvert. Ferðafólk sem ver dýrmætu sumarfríi í 35 til 40 stiga hita, lokar sig inni á loftkældum hótelherbergjum um miðjan dag og hefur takmarkaða löngun til gönguferða og skoðunarferða hlýtur að endurskoða hugmyndir sínar um hið fullkomna sumarfrí. Kælifrí Ég sá á dögunum að ferðaþjónustan hefur meira að segja fundið nafn yfir þessa þróun: coolcation, sambræðing orðanna cool og vacation, eða kælifrí, eins og kalla mætti það á íslensku. Íslenska sumarið, sem við höfum sjálf lengi bölsótast yfir, gæti skyndilega orðið eftirsóknarvert. Tólf til fimmtán stiga hiti, gola eða smá nepja, bjartar sumarnætur og víðerni gætu reynst mörgum hið fullkomna kælifrí. Ísland er vitaskuld ekki eina landið sem nýtur góðs af þessari þróun. Ferðamenn gætu í auknum mæli leitað til Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands, Írlands og Færeyja. Jafnframt gæti ferðatíminn í Suður-Evrópu færst til. Fólk færi þangað frekar að vori og hausti en til norðlægari landa yfir hásumarið. En Ísland hefur sérstaka stöðu. Þótt súldin verði seint söluvara er hér ekki aðeins svalara loftslag heldur einnig víðerni, fámenni, hreint loft, fossar, fjöll, jöklar og sú tilfinning að hægt sé að komast burt frá skarkala heimsins og mannþrönginni. Einmitt þessir eiginleikar gætu orðið sífellt verðmætari í heitari og þéttbýlli heimi. Hvað ef við ráðum ekki við ferðamannastrauminn? Þá vaknar spurning sem við höfum kannski ekki gefið nægilegan gaum. Hvað gerum við ef ferðamönnum fjölgar miklu hraðar en við höfum gert ráð fyrir? Íslensk stjórnvöld hafa mótað ferðamálastefnu til ársins 2030. Þar er rætt um sjálfbærni, dreifingu ferðamanna um landið, verndun náttúrunnar og auknar tekjur af hverjum ferðamanni. En erum við með áætlun um hvað gera skuli ef ferðamönnum fjölgar skyndilega um eina, tvær eða jafnvel þrjár milljónir? Ef til vill er stærsta spurningin ekki hvernig við eigum að takmarka fjölda ferðamanna heldur hvort við séum undir það búin að grípa til slíkra ráða ef aðsóknin fer úr böndunum. Í áratugi hefur íslensk ferðaþjónusta spurt hvernig megi fá fleiri ferðamenn til landsins, fá þá til að dvelja lengur og ferðast víðar. En stærstu spurningarnar gætu fljótt orðið aðrar. Ef hitabylgjur verða fastur fylgifiskur sumarsins í Mið- og Suður-Evrópu gæti spurn eftir svalari áfangastöðum aukist hratt. Þá gætum við lent í þeirri sérkennilegu stöðu að þurfa ekki lengur að sannfæra fólk um að heimsækja Ísland yfir sumartímann. Við þyrftum þess í stað að ákveða hversu marga við viljum fá, hvert við viljum beina þeim og hvernig tryggja megi að tekjurnar af ferðamennskunni standi undir kostnaðinum sem henni fylgir. Íslenska sumarið hefur lengi verið okkur tilefni til að fjasa og ergja okkur yfir veðrinu. Við vitum aldrei hvort við eigum að taka með okkur sólgleraugu, regnstakk eða vetrarúlpu þegar við göngum út að morgni. En ef til vill er einmitt þetta svala og óútreiknanlega sumarveður að verða verðmætari auðlind en okkur hefur órað fyrir. Í áratugi höfum við reynt að selja útlendingum íslenska sumarið þrátt fyrir veðrið. Nú gæti einmitt veðrið dregið fólk hingað, í kælifrí. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun