Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Tómas Arnar Þorláksson skrifar 21. júlí 2026 19:30 Leifur B. Dagfinnsson, framkvæmdastjóri True North. vísir/lýður valberg Framkvæmdastjóri True North segir Ódysseifskviðu frábæra landkynningu og koma Íslandi enn á ný á kortið sem frábæran tökustað. Hápunktur tökutímabilsins hafi verið að sjá 450 Íslendinga hlaupa á eftir stórstjörnunni Matt Damon.
Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá einum af tíu tökudögunum hér á landi fyrir nýjustu stórmynd leikstjórans Christopher Nolans. Myndin ríður röftum um þessar mundir og byggir á ritinu Ódysseifskviðu sem er eignað Hómer og er talin hafa verið skrifuð um 700 árum fyrir Krist. Áhorfendur hafa flykkst í bíó til að berja myndina augum og hefur hún hlotið mikið lof. Leifur B. Dagfinnsson, framkvæmdastjóri True North, sem sinnti framleiðslu myndarinnar hér á landi, segir um frábæra landkynningu að ræða fyrir Ísland. „Að verkefninu komu líklega hátt í þúsund manns þegar hæst lét, af því voru kannski 200 Íslendingar sem sköpuðu fimmtán til sextán þúsund dagsstörf. 450 aukaleikarar og áhættuleikarar. Eins og sést af endurgreiðslunni voru þetta ágætar tölur sem komu inn í þjóðarbúið.“ Tökur fóru meðal annars fram við Markarfljót og Syðra-Skógarnesi á Snæfellsnesi. Ströndin við Hjörleifshöfða er sögusvið Heljar, heimili Hadesar, í kvikmyndinni en þar komu rúmlega 400 íslenskir aukaleikarar saman til að glæða senuna lífi. „Af þessum 450 þá duttu aðeins þrír út yfir þessa fimm daga sem þeir voru að vinna. Það eru ótrúlegar tölur. Þeir stóðu sig alveg eins og hetjur, gistu í tjöldum eða skólum og bara í svona svefnpokaplássum. Þetta voru mjög langir dagar hjá þeim, þetta voru svona 18 til 20 tíma dagar með förðun og búningum og öðru sem þurfti að standsetja.“ Fjallað var um hálfgert neyðarástand í íslenska kvikmyndageiranum á dögunum þar sem fá erlend verkefni voru á dagskrá. Leifur segir Ódysseifskviðu vekja töluverða athygli á landinu sem tökustað. „Ég myndi telja það, klárlega, þegar að Christopher Nolan er að mynda þá spyrst það út um allan heim. Enda er hann á toppnum í þessum bransa, það er frábært og við þurfum á því að halda. Ég er þegar búinn að fá mikið af skilaboðum alls staðar að úr heiminum sem segja hvað Ísland komi vel út. Hver var mest krefjandi áskorunin í ferlinu? „Það var að setja saman þetta skip sem var notað. Það kom hingað í bútum og að koma því aftur saman og koma í jökulá við strönd var mjög mikil áskorun. Síðan að ferja skipið landleiðina frá Markarfljóti og á Snæfellsnesið. Það var mjög mikið dæmi og tók langan tíma. Við unnum mjög vel með lögreglunni og það gekk yfir og skipið komst á sinn stað. Það var mesta þrekvirkið.“
Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira