Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Agnar Már Másson skrifar 21. júlí 2026 12:17 Hæstiréttur dæmdi tolla Trumps ólöglega í febrúar. Samsett Mynd Íslenska líftæknifyrirtækið Embla Medical, sem áður hét Össur, fékk um 375 milljónir króna endurgreiddar vegna ólögmætra tolla Bandaríkjaforseta. Félagið bíður eftir enn frekari endurgreiðslu.
Samkvæmt nýbirtum ársfjórðungsreikningi fyrir annan ársfjórðung 2026 fékk líftæknifyrirtækið Embla Medical, sem áður hét Össur, um þrjár milljónir bandaríkjadala í endurgreiðslur fyrir tolla, sem nemur 375 milljónum króna. Það jafngildir um tíund af heildarhagnaði félagsins á ársfjórðungnum, en hagnaður félagsins jókst um 39 prósent miðað við sama ársfjórðung í fyrra. Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical, segir að félagið hafi samtals sótt um endurgreiðslu upp á fimm milljónir dala í kjölfar þess að hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi í febrúar að tollar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði á vörur frá Íslandi væru ólögmætir. Hann segir að fyrirtækið bíði enn eftir að fá restina endurgreidda, sem verði vonandi síðar á árinu. „Og það kom núna í lok annars ársfjórðungs greiðsla upp á rúmar fjórar milljónir dollara. Þannig að þetta hefur nettó þriggja milljóna jákvæð áhrif í fjórðungnum þar sem við erum enn þá að borga ákveðna tolla undir öðru regluverki,“ segir Sveinn hjá Emblu Medical. Á síðasta ári greiddi fyrirtækið tæpar átta milljónir dollara í tolla. Sveinn fagnar jafnframt góðri niðurstöðu af ársfjórðungnum. Sala Emblu á öðrum ársfjórðungi nam um 32 milljörðum króna, og jafngildir 11 prósenta aukningu frá síðasta tímabili. „Reksturinn er í grunninn góður, með góðum vexti og kostnaði haldið í skefjum þrátt fyrir verðbólgu og áhrif á virðiskeðjuna vegna hækkunar á olíuverði,“ segir Sveinn, sem telur framtíðarhorfur félagsins góðar. „Okkar hlutverk er í grunninn að búa til lausnir fyrir einstaklinga sem þurfa allt sitt líf á okkar vörum og þjónustu að halda. Þannig búum við til virði fyrir heilbrigðiskerfið og fyrir notendurna sjálfa með því að gera fólki kleift að lifa sínu lífi og hreyfa sig betur og meira og það lækkar kostnað fyrir heilbrigðiskerfið.“ Engu að síður vill hann meina að heilbrigðiskerfi heimsins, sérstaklega í Evrópu, standi frammi fyrir áskorunum, svo sem öldrun sem hafi tilheyrandi áhrif á heildarkostnað við rekstur heilbrigðiskerfa.
Embla Medical Skattar, tollar og gjöld Donald Trump Bandaríkin Heilbrigðismál Kauphöllin Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira