Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar 20. júlí 2026 12:50 Ein helsta rökfærsla ESB andstæðinga sem ég heyri þessa dagana er „ekki hægt að fá varanlegar undanþágur!“. Þegar ég sé þessa fullyrðingu þá velti ég því fyrir mér af hverju fólk heldur eiginlega að þetta séu rök gegn aðild að ESB. Skoðum málið Segjum sem svo að ég sé að kaupa íbúð í fjölbýlishúsi, en ég geri þá kröfu um að kaupa bara íbúðina ef ég myndi fá varanlega undanþágu frá öllum húsfélagsákvörðnum og reglum sem mér gæti mislíkað. Fullt af fólki kaupir nefnilega íbúðir í fjölbýlishúsum og engum dettur í hug að einhver geti fengið varanlega undanþágu frá húsreglunum - nema kannski fólk sem getur ekki hugsað sér að búa í fjölbýli og takmarkar sig við einbýli. Fólk hættir ekki við að kaupa íbúð í fjöleignarhúsi bara vegna þess að það fær ekki varanlega undanþágu frá húsreglunum. Það metur hvort reglurnar, áhrifin sem það fær og samkomulagið í heild séu ásættanleg. Sama ætti að gilda um umræðu um ESB-aðild: spurningin er ekki hvort Ísland fái ótakmarkaðar varanlegar undanþágur, heldur hvort endanlegur samningur og aðildarkjör séu nægilega góð. Látum það liggja á milli hluta Það er ekkert fullkomin samlíking að bera saman aðildarviðræður við ESB og að kaupa íbúð í fjölbýli - en sú samlíking ætti að vera nægilega skýr til þess að sjá að „varanlegar undanþágur“ rökin eru ekki málefnaleg - hvort sem það er hægt að fá varanlegar undanþágur eða ekki. Það sem skiptir máli er niðurstaðan. Hvað með það þó það sé ekki hægt að fá varanlegar undanþágur ef samningurinn er ákjósanlegur hvort sem er. Eða er það kannski málið? Að samningurinn geti ekki verið ákjósanlegur nema ef við fáum varanlegar undanþágur? Ef það er málið, þá látum við að sjálfsögðu á það reyna í samningaviðræðum - ekki satt? Og ef það er þannig að engar varanlegar undanþágur fást - og það er það sem einhverjum finnst bara skipta máli - þá hafna viðkomandi aðilar væntanlega bara samningnum. Þetta er ekki flókið - en sýnir það svo skýrt af hverju „engar varanlegar undanþágur“ eru ekki rök til þess að hafna aðildarviðræðum. Ef eitthvað, þá eru það rök með aðildarviðræðum. Því það er eina leiðin til þess að sjá hvort hægt sé að fá varanlegar undanþágur eða ekki. Ég treysti allavega ekki áliti þeirra sem eru að básúna „engar varanlegar undanþágur“ í þessari umræðu. Hvaðan kemur þetta annars? Ég fór aðeins að gramsa hvenær þessi rök voru fyrst notuð sem slagorð gegn aðild að ESB og það elsta sem ég fann var þingræða Einars K. Guðfinnsonar um skýrslu utanríkisráðherra um stöðu Íslands í Evrópusamstarfi (https://www.althingi.is/altext/125/05/r08113732.sgml) - þar sem fram kemur: „Við verðum að átta okkur á því, hvað sem menn segja og hvaða umræður sem menn taka um þessi mál, að eitt er alveg ljóst, það er ekkert til varðandi sjávarútvegsmálin sem heitir varanleg undanþága frá stefnu Evrópusambandsins.“ Þetta var svar við ræðu Össurar Skarphéðinssonar (https://www.althingi.is/altext/125/05/r08110712.sgml) þar sem hann sagði meðal annars: „Í sjávarútvegskaflanum vek ég eftirtekt á því að á bls. 37 er efnislega bent á þá staðreynd að sjávarútvegsstefnan er ekki óbreytanleg. Hún er í endurskoðun og það eru dæmi um að aðlögun gildandi stefnu að breyttum aðstæðum vegna brýnna hagsmuna, t.d. þegar sameiginlegri landbúnaðarstefnu ESB var hnikað til með tilliti til búskaparhátta á norðurslóðum í aðildarviðræðum Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Ég tel því ekki útilokað og reyndar fráleitt útilokað að Íslendingar fengju æski þeir þess sams konar girðingar gagnvart fjárfestingum útlendinga í sjávarútvegi og t.d. Danir hafa fengið gagnvart fjárfestingum útlendinga í dönskum sumarhúsum o.s.frv.“ Ef þetta eru ekki upphafsorð málflutningsins um „engar varanlegar undanþágur“ þá er þetta að minnsta kosti ansi nákvæmt bergmál. Þeir sem styðja aðild að ESB segja að það séu dæmi um aðlögun og undanþágum og vilji láta á það reyna. Og segja efnislega að þar skipti girðingar varðandi erlenda fjárfestingu máli. En á móti er bara sagt „engar varanlegar undanþágur“. Tilfinningar og sjálfstæði Ég skil það vel að það hljómi jákvætt að fá „varanlegar undanþágur“, að það viðhaldi einhvers konar sjálfstæði sem er almennt séð jákvætt orð. Hver er á móti sjálfstæði? Á sama hátt er hægt að spyrja hver sé á móti samvinnu? Ekkert af þessu eru góð rök, með eða á móti aðild að ESB. Ekki „já til að sjá“ eða „kíkja í pakkann“ eða „engar varanlegar undanþágur“. Það sem skiptir máli er samningurinn sem verður í boði. Innihald samningsins en ekki upphrópanir. En það er auðvitað þægilegt að nota svona upphrópanir sem tilvísun í rökin sem liggja þar að baki. Að baki upphrópunarinnar „já til að sjá“ eru rökin um efnislegt innihald samningsins. Að baki upphrópunarinnar „engar varanlegar undanþágur“ eru hins vegar engin rök. Bara ágiskun sem fyrri dæmi afsanna meira að segja. Já, það eru eldri dæmi um undanþágur - meira að segja varanlegar. Kannski er ekki hægt að fá þær lengur. En það er bara hægt að komast að því með því að reyna að semja um þær. Þannig að ef þú vilt varanlegar undanþágur - þá ættir þú að vilja að semja til þess að komast að því hvort það sé hægt að fá þær. Þú ættir ekki að trúa í blindni þeim sem segja að þær sé ekki að fá. Höfundur er fyrrum þingmaður og núverandi nörd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Björn Leví Gunnarsson Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun