Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Freyja Þórisdóttir skrifar 18. júlí 2026 10:51 Mikið viðbragð var á vettvangi í gær en fólk á svæðinu var hvatt til að leita sér skjóls. Mynd er úr safni. Getty Fjörutíu og átta ára maður sem var færður fyrir dómara fyrir skömmu hefur verið ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndráps í tengslum við skotárásina í Nørresundby norðan við Álaborg í gær. Hann hefur játað að hafa skotið sextíu og tveggja ára mann í gær með þeim afleiðingum að sá lést, auk lögreglumanns sem er særður. Maðurinn var leiddur fyrir dómara klukkan tólf á staðartíma í dag vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar en þrír urðu fyrir skoti í árásinni í gær; lögreglumaður, almennur borgari og sá grunaði. Almenni borgarinn sem lést var sextíu og tveggja ára maður en ástand lögreglumannsins er sagt stöðugt. Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun danska ríkisútvarpsins um málið. Hinn 48 ára gamli maður er grunaður um manndráp og tilraun til manndráps eftir að hafa skotið á lögreglumann, samkvæmt því sem fram kemur á danska ríkisútvarpinu en við hann hefur þegar játað manndrápið. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700, netspjallið á heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 sem opinn er allan sólarhringinn. Dómari hefur ákveðið að skýrslutakan fari fram fyrir luktum dyrum en ástæðan er sögð sú að hinn grunaði hafi verið of órólegur vegna viðveru annarra til að geta gefið skýrslu. Hins vegar varð dómari ekki við beiðni verjanda mannsins sem fór fram á nafnleynd í málinu. Fram kom í umfjöllun að hann hafi sagst „ekki geta meir“ og að hann hygðist taka eigið líf en aðspurður sagðist hann ekki muna hvað gerðist í gær. Fréttin hefur verið uppfærð. Dómsmál Lögreglumál Danmörk Erlend sakamál Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Sjá meira
Maðurinn var leiddur fyrir dómara klukkan tólf á staðartíma í dag vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar en þrír urðu fyrir skoti í árásinni í gær; lögreglumaður, almennur borgari og sá grunaði. Almenni borgarinn sem lést var sextíu og tveggja ára maður en ástand lögreglumannsins er sagt stöðugt. Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun danska ríkisútvarpsins um málið. Hinn 48 ára gamli maður er grunaður um manndráp og tilraun til manndráps eftir að hafa skotið á lögreglumann, samkvæmt því sem fram kemur á danska ríkisútvarpinu en við hann hefur þegar játað manndrápið. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700, netspjallið á heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 sem opinn er allan sólarhringinn. Dómari hefur ákveðið að skýrslutakan fari fram fyrir luktum dyrum en ástæðan er sögð sú að hinn grunaði hafi verið of órólegur vegna viðveru annarra til að geta gefið skýrslu. Hins vegar varð dómari ekki við beiðni verjanda mannsins sem fór fram á nafnleynd í málinu. Fram kom í umfjöllun að hann hafi sagst „ekki geta meir“ og að hann hygðist taka eigið líf en aðspurður sagðist hann ekki muna hvað gerðist í gær. Fréttin hefur verið uppfærð.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar 1700, netspjallið á heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 sem opinn er allan sólarhringinn.
Dómsmál Lögreglumál Danmörk Erlend sakamál Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Sjá meira