Flóka saknað og grunur um þjófnað Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. júlí 2026 13:09 Eftir því sem fréttamaður kemst næst er Flóki ljósrauðblesóttur sokkóttur eða hugsanlega bleikblesóttur sokkóttur. Lisi Gugler Íslenska geldingsins Flóka er leitað logandi ljósi í litlum dal í austurrísku Ölpunum en hans hefur verið saknað í rúmar tvær vikur. Lögreglu grunar þjófnað.
Staðarmiðill Þýskalandsmegin landamæranna fjallar um málið. Hinn bleikblesótti, sokkótti Flóki hefur um eitthvert skeið verið hafður í hesthúsi á afrétti í Puittal í nágrenni Leutasch við mörk Tírols og Bæjaralands. Helgina 27.-29. júní hvarf hann hins vegar sporlaust. Lögreglan í Tírol telur að Flóka hafi verið stolið og rannsókn stendur yfir. Hvers vegna einhverjum dytti í hug að stela Flóka er eigendum hans algjörlega hulin. Dóttir eigendanna segir fjölskylduna hafa verið á fjöllum að leita hans sex til átta tíma á dag síðastliðnar tvær vikur en ekkert fundið. Lisi Gugler, dóttir eigenda Flóka, segist telja slys hafi orðið. Afrétturinn þar sem Flóki dvaldi er afgirtur en þó eru skemmdir á girðingunni sem Flóki hefði getað sloppið um. „Það er mögulegt að hann hafi horfið upp á eigin spýtur. Hamrarnir eru þverhníptir,“ segir hún í samtali við Tiroler Tageszeitung. Fjölskyldan heldur enn í vonina um að Flóki finnist á lífi og hafa brýnt til fjallgöngugarpa, veiðimanna og ferðamanna á svæðinu að hafa augun opin. „Við söknum trygga vinar okkar svo mjög og yrðum þakklát allri hjálp,“ segir Gugler.
Austurríki Hestar Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira