Hlutafé Fossa aukið um 300 milljónir til að styðja við vöxt á efnahag bankans
Á meðan afkoman hjá Skaga var dræm af fjármálastarfsemi og fjárfestingum, meðal annars talsvert rekstrartap hjá Fossum, þá náði að vega á móti að áfram var góður gangur í tryggingarekstrinum á öðrum fjórðungi. Í lok síðasta mánaðar stóð móðurfélagið að baki hlutafjáraukningu í Fossum upp á þrjú hundruð milljónir sem á að styðja við aukna lánastarfsemi fjárfestingabankans.
Tengdar fréttir
Fossar juku hlutaféð um 600 milljónir eftir hækkun á eiginfjárkröfu bankans
Hlutafé Fossa var hækkað í tveimur áföngum með skömmu millibili undir lok síðasta árs að fjárhæð samtals sex hundruð milljónir en aukningin, sem er sögð til að styðja við áframhaldandi vöxt, var meðal annars gerð til uppfylla nýja lágmarks eiginfjárkröfu af hálfu fjármálaeftirlitsins. Efnahagsreikningur Fossa nærri tvöfaldaðist að stærð á liðnu ári á meðan hreinar rekstrartekjur jukust um sextíu prósent en fjárfestingabankinn skilaði hins vegar lítillegu tapi fyrir skatt.
Aðeins nokkrum milljónum króna frá því að fara yfir tíu prósenta múrinn í Skaga
Eftir að hafa stækkað enn frekar við stöðu sína í Skaga í liðinni viku þá vantar núna aðeins nokkrar milljónir króna að markaðsviði upp á að fjárfestingafélag Bjarna Ármannssonar brjóti tíu prósenta múrinn sem myndi kalla á heimild til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtækinu.
„Kom verulega á óvart“ að ekki tókst að semja um verð vegna mikillar samlegðar
Samruni Íslandsbanka og Skaga hefði getað skilað báðum félögum töluverðum ávinningi, jafnvel mun meiri en þeirri áætluðu samlegð sem var gefin út, og því kom það „verulega á óvart“ að ekki hafi tekist að endursemja um nýja verðskilmála, að sögn hlutabréfagreinenda. Verðmat á Íslandsbanka hefur verið hækkað nokkuð, meðal annars vegna væntinga um betri arðsemi, en uppfærð fjárhagsleg markmið stjórnenda eru sögð vera „afar metnaðarfull“ en alls ekki ógerleg.