Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar 16. júlí 2026 11:32 Merkilegar tilviljanirnar. Ég datt ofan í að lesa ævisögu krónunnar. Mjög merkileg saga en í raun saga þrautseigju og vonar. Við sem erum komin á efri ár munum eftir þessu basli krónunar. Hún hefur minnt okkur meira á fulla frændann en Jón frænda sem alltaf kom og veitti hjálparhönd. Fyrstu árin eftir fæðingu brosti lífið við henni. Hún var ung og þrýstin og vafði hún dollaranum um fingur sér og færri fengu en vildu, hún tók ekki á móti nema 0,84 dollurum fyrir hverja krónu. Svo liðu árin og útvegsbóndinn kvartaði mjög yfir því hvað hún var ábyrgðarlaus og heimtaði að hún hægði á sér. Með semingi gerði hún það og upp úr 1980 var hún nærri því ráðsett húsfreyja og keypti sér snotra íbúð í Landsbankanum. Hún átti vini í Búnaðar- og Útvegsbankanum og gat dottið hressilega í það með þeim kújónum. 1981 eignaðist hún barn sem var skírt því frumlega nafni Nýkróna við fæðingu. Nýkróna var lítil og pervisin - ekki nema 1 króna á móti mömmunni sem hafði fitnað ótæpilega enda var þetta á árunum fyrir World Class og skokk og Skarsdeilkúrinn sem Davíð var á. Svo fóru leikar að um haustið veiktist sú gamla hastarlega og bara dó. Ekki greindu læknar hver orsökin var og allir þrættu fyrir að þessi ótímabæri dauði hefði borið að vegna lifnaðar eða slæmra fjölskylduaðstæðna. Nei, ó, nei, sagði forseti Alþingis og aðrir heimilismenn litu til lofts og fóru að skoða ljósakrónurnar í þingsalnum. Hver er sinnar gæfu smiður sagði prestur Dómkirkjunnar og leit hvasst á þingmennina og ráðuneytisfólkið um leið og hann setti smá mold ofan á kistuna. Kórinn söng ógurlega: „Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristí krafti eg segi: Kom þú sæll, þá þú vilt.“ Það er naumast að haft er fyrir því hugsaði forsetinn sem þekkti hana eins og segir í sögunni. Auðvitað gat ekki öðruvísi farið en sú stutta, sem oftast var kölluð Nýkróna af virðingu við mömmuna, óx úr grasi. Það reyndist rétt sem margir halda að, fjórðungi bregður til móður, fjórðungi bregður til fósturs, og um þá stuttu gildi það líka. Hún byrjaði á sama útstáelsinu og mamman og gat ekki með nokkru móti látið nægjusemi og útsjónarsemi vera sinn leiðarvísi. Má ef til vill geta sér þess að danska genið í henni væri þar að minna á sig? Í gemju sinni fór fólk að kalla hana Krónu, rétt eins og mömmuna. Sú stutta fitnaði og fitnaði, þó henni stæði til boða bæði holler vexti vildi hún ekkert nema drasl fæði. Nei! Hún hafði lent í slæmri vist og það sem verra var, hún fór á útstáelsi með óvönduðum mönnum. Hún kynntist manni sem kallaður var Lárus Suðumaður og það reyndist henni erfið sambúð. Eins og segir í lagi Bjartmars: Hún var fimmtán ára á föstu, sextán ára í sambúð, sautján ára fríkaði hún út, átján ára lamin, nítján ára skilin, tvítug bæld og komin í kút. Öðruvísi gat það ekki endað. Eiginlega strax á unglingsárunum átti Nýkróna ósköp bágt og þurfti mikla hjálp til að fóta sig. Hún kynntist sjómanni vestan af fjörðum – eða var hann að Austan – það lá aldrei fyrir þeir eru allir sömu frekjudollurnar? Þetta voru hennar verstu ár og það svona í frumbernsku. Í dag væru Stígamót komin í málið. Loks milli 2000 og 2004 braut hún af sér alla hlekki (hlustaði ekki á neitt nema Ískalda hlekki og Mér finnst ég vera að drukkna) hún ánetjaðist LSD og kynntist fyrirmönnum. Þegar henni var ætlað að taka við verkefnum Bandaríska dollarans fír hún að ferðaðist með forseta lýðveldisins á Saga Klass og eins líka með Davíð, Hannesi og Hannesi H. Þetta var spennandi tækifæri og hún sá sig sem fyrsta alvöru áhrifavaldinn hér heima og í LA. Þetta voru bæði erfiðir tímar og brjálað fjör líka. Hún klesti rándýran bíl út í Kópavogslækinn og hló að öllu saman. Ef hún hefði ekki verið með allt þetta Bótox og PIP púða þá væri hún bara ekki hér. Svo fór hún auðvitað á snúrunna til Þórarins. Ferðafélagarnir létu hinsvegar ekki deigan síga og heimsóttu hana sjaldan. Þeir kynntust algerri gellu sem heitir Evra og er miklu meira sexy. Nú eru þeir allir í því að “Gera upp í Evrum” Þessi ár hjá Þórarni voru erfið, hún glímdi við eitthvað sem læknaasnarnir kölluðu fjárhagslega vefja- og slitgigt. Hún átti erfitt um fjárfestingar og var ansi máttlaus og dauf, hreint út sagt. Vildi helst bara hvíla sig niðri í Seðlabanka og ekkert vera að taka á því með okkur dauðlegum. En auðvitað er lífið oftast ekki eins slæmt og segir í textanum hans Bjartmars. Og þegar svartnættið er forút og vonin veikust nær einstaklingurinn stundum að brosa í gegnum tárin og spyrna sér upp af botninum. Hún kynntist konu sem Sólveig Anna heitir. Sú hafði oft komist upp á kant við folk. Hún þótti bæði mjóslegin og veikluleg en Þorsteinn vinur hennar segir hana bráð gæafaða. Það var ekki endilega góð mannlýsing en satt best að segja dugar ágætlega. Sólveig þekkti mann upp á Akranesi sem hafði oft reynst Sólveigu vel en var daufur að því leyti til að hann misskildi Sólveigu mjög oft. Honum líkaði hinsvegar í raun betur við Krónu og það setti smá bremsuhljóð í sambandið milli Solluo g Villa á kvöldin fyrir framan fréttatímann og Kveik. Í dag hitti ég hana á Múlakaffi. Óvænt algerlega. Hún var hálf tekin að sjá. Hún kannaðist lauslega við mig úr Vesturbænum. Við heilsuðumst og hún svona lagði hönd á mína og sagði: „Gestur, þú veist að ég er ekki vond?“ „Nei alls ekki,“ missti ég út úr mér – kannski meinti ég það líka. Hún brosti. Og ég bætti við „Og heldur ekki heimsk.“ Hún brosti fallega eins og nýsleginn Danskur túskildingur – Mikið hvað hún gat verið lík pabba sínum stundum. „Kannski hefur hún einfaldlega aldrei fengið að lifa við þau skilyrði sem stöðugur gjaldmiðill þarf. Því hún er innst við beinið gjaldmiðill en ekki króna í þeim skilningi. Þess vegna snýst umræðan ekki um tryggð við gömlu Nýkrónuna, heldur um það hvort við eigum að halda áfram að leggja á hana byrðar sem hún ræður ekki við. Það eru ekki svik við hana að viðurkenna takmarkanir hennar. Stundum er mesta vináttan fólgin í því að hætta að ætlast til hins ómögulega af henni.“ Höfundur er verkfræðingur á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslenska krónan Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun