Innherji

Hækka verðmatið og segja Simponi geta orðið „vendi­punktur“ fyrir Al­vot­ech

Hörður Ægisson skrifar
Róbert Wessman, stjórnarformaður og aðaleigandi Alvotech, hefur sagt samkeppnina vera „mjög takmarkaða“ í Bandaríkjunum og félagið geri ráð fyrir að vera í fararbroddi með hliðstæðu við Simponi. Lyfið selst í dag fyrir um þrjá milljarða dala á heimsvísu.
Róbert Wessman, stjórnarformaður og aðaleigandi Alvotech, hefur sagt samkeppnina vera „mjög takmarkaða“ í Bandaríkjunum og félagið geri ráð fyrir að vera í fararbroddi með hliðstæðu við Simponi. Lyfið selst í dag fyrir um þrjá milljarða dala á heimsvísu. Vísir/Vilhelm

Alvotech gæti séð fram á „verulegan ávinning“ eftir að samkeppnisstaðan á markaði fyrir hliðstæðulyf við Simponi hefur breyst félaginu í hag, samkvæmt SEB, sem hefur hækkað verðmat sitt um nærri þriðjung. Greinendur sænska bankans búast við að sölutekjur verði dræmar á öðrum fjórðungi en veðja á að markaðurinn muni endurmeta hlutabréfaverð Alvotech til hækkunar á næstu tólf til átján mánuðum.


Tengdar fréttir

Vonast eftir aukinni veltu með inn­komu yfir þrjátíu nýrra er­lendra sjóða

Væntingar eru um að með innkomu meira en þrjátíu nýrra erlendra sjóða eftir nýlegt hlutafjárútboð Alvotech í Bandaríkjunum, margir með áherslu á líftæknigeirann, þá muni það auka veltu með bréfin og komnir séu að borðinu fjárfestar sem skilji betur verðmætin í lyfjapípu félagsins, að sögn Róberts Wessman. Hann fer hörðum orðum um regluverkið í kringum líftæknilyfjahliðstæður í Bandaríkjunum, sem er lakara borið saman við Evrópu, og segir að það geri stórum framleiðendum frumlyfja mögulegt að verja markaðshlutdeild sína mun lengur en eðlilegt megi teljast.

Sér mikil tækifæri með hliðstæðu við Simponi vegna tak­markaðrar sam­keppni

Alvotech gerir ráð fyrir því að vera komið með þrjár nýjar líftæknilyfjahliðstæður á Bandaríkjamarkað í árslok og horfir þar einkum til tækifæra með hliðstæðuna við Simponi, að sögn stofnanda og aðaleigenda félagsins, þar sem samkeppnin er „mjög takmörkuð.“ Hann segir Alvotech vera á ákveðnum „vendipunkti“ og að breytingar á regluverki FDA séu til þess fallnar að styrkja samkeppnisstöðu félagsins enda talsverðar aðgangshindranir fyrir nýja leikendur að koma inn á markaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×