Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. júlí 2026 12:32 Um 8.000 manns var sagt upp hjá Meta fyrr á árinu. Getty/Kevin Dietsch Tugir starfsmanna Meta hafa höfðað mál á hendur fyrirtækinu, sem þeir segja hafa notað gervigreind til að velja þá sem sagt var upp í fjöldauppsögn. Fyrirtækið, sem er móðurfélag Facebook, Instagram og WhatsApp, sagði upp samtals 8.000 starfsmönnum í uppsögninni.
Samkvæmt kærunni var gervigreindin notuð til að velja þá starfsmenn sem sagt var upp en valið byggði á ýmis konar mælikvörðum, til að mynda eftirliti með innslætti á lyklaborð, viðveru og framleiðni. Þar sem tæknin var notuð til að „reikna út“ hverjum ætti að segja upp og yfirmenn komu almennt ekki að ákvörðuninni, segja starfsmennirnir að þeim hafi verið mismunað. Allir eiga það sameiginlegt að hafa verið frá vinnu þegar mælingarnar fóru fram. Þannig voru sumir í barnseignaleyfi, aðrir í veikindaleyfi og enn aðrir í umsömdu orlofi. Starfsmennirnir segja fyrirtækið þannig hafa mismunað gegn þeim á meðan þeir voru að nýta sér lögbundin réttindi. Þeir krefjast þess að uppsagnirnar verði frystar á meðan málið fer fyrir dómstóla. Málið afhjúpar mögulegar afleiðingar aukins eftirlits fyrirtækja með starfsmönnum sínum með aðstoð gervigreindar en Meta greindi frá því í fyrr á þessu ári að fyrirtækið myndi þaðan í frá skrásetja allan innslátt, alla músanotkun, vafraleitir, skilaboð, tölvupósta og staðsetningargögn starfsmanna til að þjálfa gervigreindina. Ákvörðunin var harkalega gagnrýnd og stjórnendur fyrirtækisins ákváðu í byrjun sumars að stöðva eftirlitið, að minnast kosti tímabundið. Meta hefur neitað því að gervigreindin hafi verið notuð við uppsagnirnar.
Tækni Gervigreind Meta Bandaríkin Vinnumarkaður Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira