„Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 14. júlí 2026 21:48 Brotist var inn í Hreppslaug í Borgarfirði í dag. Hreppslaug Brotist var inn í Hreppslaug á Hvanneyri í dag en Ungmennafélagið Íslendingur rekur laugina. Formaður þess segir innbrotið vera „súrt“ enda hafi mikil uppbygging átt sér á svæðinu og sundlaugin sé rekin með sjálfboðaliðastarfi.
Starfsmenn laugarinnar hafi verið komnir til vinnu í morgun til að undirbúa opnun þegar komst í ljós að framið hefði verið innbrot, segir Kristján Guðmundsson, formaður Ungmennafélagins Íslendings. Töluverðar skemmdir hafi verið á hurð húsnæðis laugarinnar þar sem brotist var inn. Brösuglega hafi gengið fyrir þjófinn að komast í gegnum gler hurðarinnar, enda um sterkt öryggisgler að ræða. „Hann fann einhver áhöld þarna hjá okkur bakatil sem hann notaði til að brjóta á hurðina. Það gekk mjög erfiðlega, þetta var frekar sterkt öryggisgler þannig að hann var töluvert lengi að komast í gegnum glerið,“ segir Kristján. Hreppslaugin er friðuð en húsið var nýlega endurbyggt. Hreppslaug „Þetta er bara svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu. Þetta er í rauninni sundlaug sem er rekin í sjálfboðastarfi, það er ungmennafélag sem á laugina. Það er búin að vera mikil uppbygging þarna síðustu árin og bara svolítil synd að lenda í svona.“ Sem betur fer hafi ekki mikil verðmæti verið í húsnæðinu en þó hafi sjóðsvélinni og öðrum minni hlutum verið stolið. Hringt hafi verið strax á lögreglu og hún rannsaki nú málið. Lögregla sé með góðar upplýsingar í höndunum en öflugt myndavélakerfi sé á staðnum þar sem sjáist í viðkomandi og bíl hans. „Við treystum því bara að lögreglan leysi þetta“ segir Kristján. Töluvert tjón sem verði vonandi lagað sem fyrst Tjónið á hurðinni sé töluvert og panta þurfi nýtt gler í hurðina sem taki töluverðan tíma. „Þetta er leiðinlegt tjón og það tekur svolítinn tíma að laga þetta, það er verið að panta nýja glugga, karmurinn er ónýtur og allt. Þannig að þetta er töluvert tjón og vonandi leysist það fljótt. Lögð hafi verið áhersla á að opna laugina sem fyrst og þau séu að því leitinu til heppin með nágranna sem kipptu málunum í lag í bili. Bráðabrigðaviðgerðir hafi verið gerðar á hurðinni og því hafðist að taka á móti gestum á ný í dag. Bráðabirgðaviðgerðir voru gerðar á hurðinni svo hægt væri að opna laugina fyrir gestum á ný.Hreppslaug „Við áttum góða aðila hérna í sveitinni sem gátu komið og gert svona bráðabirgðaviðgerðir, þannig að við gátum opnað bara þarna seinna um daginn.“
Sundlaugar og baðlón Lögreglumál Borgarbyggð Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira