Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó Anton Kári Halldórsson og skrifa 14. júlí 2026 10:00 Fyrirhugaðar breytingar og þjónustuskerðingar Vegagerðarinnar á leiðakerfi landsbyggðastrætó, sem taka gildi núna í haust, valda stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og íbúum öllum á Suðurlandi þungum áhyggjum. Rekstrarskerðingarnar hitta vaxandi svæði beint fyrir og bera vott um alvarlegt ósamræmi á milli yfirlýstra markmiða stjórnvalda og raunverulegra fjárveitinga. Á sama tíma og nýsamþykkt samgönguáætlun kveður á um að efla eigi almenningssamgöngur til að bæta þjónustu, er Vegagerðinni gert að mæta 660 milljóna króna vanfjármögnun með því að skera niður í almenningssamgöngum, sem eru forsenda atvinnuþátttöku, náms og þjónustusóknar fyrir fjölmarga íbúa landsbyggðarinnar. Skerðingar á vaxandi svæði þvert á hagsmuni íbúa Niðurskurðurinn bitnar þungt á Sunnlendingum. Suðurland hefur verið í fararbroddi meðal landshluta þegar kemur að íbúafjölgun og uppbyggingu undanfarin ár með tilheyrandi áskorunum, m.a. í samgöngum. Breytingarnar fela í sér að ferðum á leið 51 á milli Selfoss og Reykjavíkur fækkar úr sextán niður í fjórtán á dag, þrátt fyrir að samkvæmt tölfræði Vegagerðarinnar sé þetta langfjölfarnasta leið kerfisins á Suðurlandi með yfir 57 þúsund farþega á ári. Þá fækkar ferðum á leið 71 á milli Þorlákshafnar og Hveragerðis úr fimm niður í fjórar, þrátt fyrir að rúmur fimmtungur íbúa á þessum slóðum sæki vinnu og þjónustu yfir á höfuðborgarsvæðið eða á Selfoss. Mest bitnar þessi niðurskurður þó á Uppsveitum Árnessýslu þar sem leið 73 á milli Selfoss og Reykholts leggst hreinlega af. Sveitarstjórnir í Uppsveitum Árnessýslu hafa þegar mótmælt þessum áformum kröftuglega og undrast stórum ákvörðunartöku þar sem ekkert samráð var haft við sveitarfélögin. Aksturinn á þessari leið kom á sínum tíma í stað skólaaksturs fyrir nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSU) og er með öllu óásættanlegt að fella hann niður. Aðgengi að almenningssamgöngum á að jafna stöðu íbúa óháð aldri og efnahag en með niðurfellingunni skerðast möguleikar ungmenna í Uppsveitum til að stunda nám heiman frá sér og taka virkan þátt í félagslífi, íþróttum og öðru tómstundastarfi. Þá má geta þess að í síðustu breytingum á svæðinu var stoppistöðin við gatnamót Þjórsárdalsvegar og Skeiðavegar felld út, sem var eina tenging íbúa í Árnesi við kerfið, og með niðurfellingu leiðar 73 standa Uppsveitir Árnessýslu því eftir nánast án almenningssamgangna, sem er með öllu óboðlegt. Grafa undan framsæknum fyrirtækjum og orkuskiptum Þessi skammsýni bitnar ekki aðeins á skólafólki og almennum íbúum, heldur refsar hún einnig framsæknum sunnlenskum fyrirtækjum sem hafa sýnt mikið frumkvæði og fjárfest ómælt í vistvænum lausnum. Fyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson (GTS) á Selfossi er skýrt dæmi um aðila sem svaraði kalli stjórnvalda um orkuskipti með því að byggja upp öfluga hleðsluinnviði og rafvæða bifreiðaflota sinn sérstaklega í tengslum við þjónustuhlutverk sitt í almenningssamgöngum á Suðurlandi. Þessir frumkvöðlar standa nú frammi fyrir rýrari samningum í haust vegna niðurskurðar Vegagerðarinnar. Ef við viljum raunverulegan árangur í umhverfismálum og umferðaröryggi á fjölsóttum ferðamannasvæðum verðum við að sýna úthald, skapa stöðugleika og tryggja að fjármálaáætlun, samgönguáætlun og framkvæmdaraðilar vinni í takti til langs tíma. Ný könnun sýnir mikla eftirspurn íbúa eftir strætó Ný fýsileikakönnun SASS og Háskólafélags Suðurlands frá vorinu 2026 sýnir svart á hvítu að brýn þörf er á öflugra samgöngukerfi og samnýtingu aksturs í Árnessýslu. Þar sýna niðurstöður að þótt 91% svarenda hafi daglegan aðgang að einkabíl, þá myndu heil 58,2% íbúa nýta almenningssamgöngur vikulega eða oftar ef tímasetningar og tengingar mættu raunverulegum ferðaþörfum þeirra. Stærsta þjónustugatið og mesta eftirspurnin er síðdegis á milli klukkan 15:00 og 18:00, þar sem 41,4% svarenda bentu á að ferðir vantaði sárlega þegar skóla- og vinnudegi lýkur. Í Flóahreppi, sem stendur utan hefðbundins strætókerfis, sögðust yfir 60% heimila tilbúin að nýta sér sérstakan frístundaakstur fyrir börn og ungmenni. Þessi hrópandi eftirspurn sýnir svart á hvítu að vandinn liggur ekki í áhugaleysi íbúa, heldur í skorti á hentugum ferðum á þeim tímum þar sem þörfin er mest. Tækifæri til að bregðast við í september Íbúar og atvinnulíf á landsbyggðinni eiga ekki að þurfa að búa við skerta þjónustu og ófyrirsjáanleika á sama tíma og framlög til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu hækka í samgönguáætlun. Það virðist vera að stjórnvöld líti á almenningssamgöngur á landsbyggðinni sem lúxus en ekki nauðsynlega innviði sem héldi samfélögum svæðisins gangandi. Það tekur langan tíma að byggja upp traust og vana hjá farþegum en það tekur örskamma stund að glata þeim árangri með sífelldum skerðingum. Ríkisstjórnin fær tækifæri til að leiðrétta þessa vanfjármögnun og sýna yfirlýstum markmiðum sínum stuðning í verki þegar fjárlagafrumvarp næsta árs verður lagt fram í september næstkomandi. Stjórn SASS skorar á stjórnvöld að nýta það tækifæri vel og tryggja íbúum og þeim fjölmörgu ferðamönnum á Suðurlandi öruggar og fjármagnaðar almenningssamgöngur. Höfundur er formaður stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar Grímsson og Cherry-picking Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar Skoðun Kveðum niður gyðingahatur Guðmundur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar
Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar
Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar
Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun